Viðburðurinn, sem kallast „Þjóðin ræður“, hefst klukkan 17:30 og verður hægt að fylgjast með í beinu streymi í spilaranum að neðan.
Í tilkynningu segir að Kristrún muni þar flytja lokaskilaboð til þjóðarinnar kjölfar fjölda hlustunarfunda sinna um hagsmuni Íslands.
„Bríet tekur lagið og Bergur Ebbi Benediktsson leiðir samtal við salinn. Fögnum lýðræðinu. Mætum og kjósum. Þjóðin ræður,“ segir í tilkynningunni.
Hægt er að fylgjast með útsendingunni í spilaranum að neðan.