Umsjónaraðili Hopp hlaupahjóla á Ólafsfirði þurfti að taka 10 hjól úr umferð til að yfirfara þau eftir að ábending barst um að hópur ungmenna hefði gert sér það að leik að bera smurolíu á dekk þeirra. Talið er að ungmennin hafi gert það til þess að leika sér að spóla á hjólunum.
Jón Ólafsson, framkvæmdastjóri Evanger ferðaþjónustunnar sem sér um Hopp hjól í Fjallabyggð, sagði í samtali við fréttastofu að öryggi notenda væri númer eitt, tvö og þrjú. Engin slys hafi orðið á notendum hingað til og þannig vilji Evanger hafa það. Að sögn Jóns fann hópur ungmenna smurolíuna í tunnu við höfnina á Ólafsfirði. Hjólin eru enn í yfirhalningu en bæði þurfti að skipta um eitthvað af dekkjum sem voru skemmd og þrífa hjólin.
Rebekka Rún Sævarsdóttir, varðstjóri lögreglunnar í Fjallabyggð, segir að almennt hafi gengið vel með hopphlaupahjólin. Lögreglu hafi ekki borist neinar tilkynningar, hvorki um slys né skemmdarverk á hjólunum.