Vert er að upplýsa svolítið um sálfræðina og kynfræðinginn John Money sem fann upp hugtakið ,,kynvitund.” Ef ske kynni að menn þekki ekki söguna.
Tvíburabræðurnir Bruce og Brian Reimer fæddust 22. ágúst 1965 í Winnipeg í Kanada. Foreldranir ákáðu umskurð á drengjunum, sem gert var nokkrum mánuðum síðar.
Læknirinn notaði rafhníf, en þegar Bruce var umskorinn var straumurinn of mikill. Barnið fékk svo alvarleg brunasár að vefir dóu og limurinn fór af. Brian slapp.
Foreldrarnir voru að sjálfsögðu örvæntingafullir og eftir nokkurn tíma heimsóttu þau John Money.
Money ákvað að nota meidda drenginn í ógeðfelldri kynjafræði tilraun. Money vildi „sanna“ kenningu sína um að „kynvitund“ væri félagsleg smíð og sannfærði foreldra drengsins um að láta hann ganga í gegnum ,,kynleiðréttingar” aðgerð og ala hann upp sem stúlku. Þeir gáfu honum nafnið Brenda.
Tilraunin hyllt
Í meira en tuttugu ár var tilraunin með Bruce og Brian Reimer hyllt sem eitt af stærstu og brautryðjandi afrekum í nútíma sálfræði og kynfræði.
John Money birti fræðigreinar og bækur þar sem hann fullyrti að „Brenda“ hefði aðlagast hlutverki stúlku fullkomlega. Hann lýsti barninu sem femínisku og hamingjusömu og hélt því fram að „hún“ þróaðist nákvæmlega eins og líffræðileg stúlka myndi gera. Málið varð hluti af námskrá háskóla víða um heim og var notað sem vísindalegur sönnunargagn þess að uppeldi vegur þyngra en líffræði þegar kemur að „kynvitund.“
„Árangurssagan“ lagði einnig grunninn í læknisfræðinni „Framgangssagan“ lagði líka læknisfræðilega grunninn fyrir hvernig börn fædd með DSD (óræð kyneinkenni) voru meðhöndluð á sjúkrahúsum um allan heim.
Var það svo
Sannleikurinn var sá að Money falsaði niðurstöðurnar. Hann faldi fyrir umheiminum að „Brenda“ hefði frá unga aldri sýnt mikla mótstöðu gegn því að klæðast stelpufötum. Barnið neitaði að leika sér með stelpuleikföng, varð fyrir einelti í skólanum og þjáðist af djúpu þunglyndi.
Að auki orsakaði John Money báðum drengjunum mikið áfall með reglulegum og ósiðlegu eftirliti. Á kynþroskaskeiðinu var Bruce einnig neyddur til að ganga í gegnum kvenhormónameðferðir til að viðhalda úthlutuðu kynhlutverki, sem leiddi til mikillar sjálfsmyndarkreppu og kynvitundarerfiðleika.
Þegar Bruce, sem var „orðinn“ Brenda, árið 1980, var rétt rúmlega 15 ára, neitaði hann að mæta í fleiri tíma hjá Money. Foreldrarnir ákváðu þá að segja honum sannleikann. Hann hafnaði stelpuhlutverkinu, tók nafnið David Reimer og hóf langa baráttu til að fá líkamann sinn aftur, sem karlmaður.
Vorið 1997 birti The New York Times grein byggða á sjálfstæðri læknisrannsókn, þar sem svikin voru opinberlega afhjúpuð fyrir heiminn í fyrsta skipti. Auðkenni Davids í skýrslunni var haldið leyndu, þar til hann valdi sjálfur ákvað að stíga fram undir fullu nafni og sýna andlit sitt í fjölmiðlum nokkrum mánuðum síðar til að segja frá þessari hrollvekjandi sögu. Tilraun á börnum sem enn er stunduð í dag, þrátt fyrir betri vitneskju.
Banvænar afleiðingar
Djúpu áföllin og siðferðislega óviðeigandi meðferð sem bræðurnir voru beittir fól í sér banvænar afleiðingar.
Brian Reimer glímdi við alvarleg geðræn vandamál og tók eigið líf árið 2002.
Tveimur árum síðar, árið 2004, tók einnig David Reimer eigið líf.
John Money lést árið 2006, með mannorð sitt og ævisverk i í rúst eftir þessar hrollvekjandi afhjúpanir. Þrátt fyrir þetta halda menn fast í trans hugmyndafræðina sem byggir að mestu á hugmyndum manns sem eyðilagði líf tveggja drengja í þágu tilraunar á börnum.
„Kynvitund“, já. Hugtakið sem stjórnmála- og þingmenn, víða um heim, hafa innleitt í löggjöfina og sem margir embættismenn nota eins og það sé vísindalega öruggt og hversdagslegt mál sem ætti að láta rugluð börn og unglinga ákveða…
Vita þeir eiginlega hvað þeir eru að gera?
Verra er að heilbrigðisstarfsmenn nota þetta hugtak vitandi um tilraunir John Money á drengjunum.
Vitandi að orðið ,,kynvitund hefur eiginlega enga skilgreiningu. Hugtakið kynvitund var kynnt og gert vinsælt af John William Money (8. júlí 1921 – 7. júlí 2006) sem var nýsjálenskur bandarískur sálfræðingur, kynfræðingur og prófessor við Johns Hopkins-háskóla, þekktur fyrir rannsóknir sínar á mannlegri kynhegðun og kyni” segir á síðunni Drenglyndi
Money þróaði hugtakið í gegnum vinnu sína með ,,kynleiðréttinga“ aðgerðir á litlum börnum með óljós kynseinkenni. Þekktasta tilraun hans endaði skelfilega, með sjálfsvígi einstaklinganna.
Dönsk rannsókn sýnir að þeir sem hafa farið í gengum svokallað ,,kynleiðréttingaferli” er hættara við að falla fyrir eigin hönd en aðrir. Það segir sína sögu, rétt eins og drengjanna tveggja.
Skýringin er, að kynvitund er tilfinning eða upplifun.
Byggist á skrifum Elin P. Gregusson
Hér má lesa nánar um afdrif tvíburanna, The Reimer Twins | BBC World Service