Jarðskjálfti af stærðinni 3,8 mældist í Bárðarbunguöskjunni um kl. 3.50 í nótt. Tugir eftirskjálfta hafa fylgt.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá náttúruvárvakt Veðurstofu Íslands.
Slíkir skjálftar reglulegir
Þar segir jafnframt að jarðskjálftar af slíkri stærðargráðu séu nokkuð reglulegir í eldstöðinni.
Síðast varð skjálfti af sömu stærð í Bárðarbungu 31. mars á þessu ári.