Bandero kom til hafnar fyrir örfáum mínútum.
Alexander Kristjánsson fréttamaður er í Vatnagörðum. Hann segir skipið statt á lokuðu svæði.
Engir viðbragðsaðilar eru sjáanlegir á vettvangi en í morgunfréttum útvarps kom fram að lögreglan á höfuðborgarsvæðinu taki nú við málinu.
Góðan daginn. Ég heiti Guðmundur Atli Hlynsson og mun í dag fylgjast með aðgerðum sem tengjast yfirtöku Landhelgisgæslunnar á skipinu Bandero.
Skipið Bandero er að leggjast að bryggju á lokuðu hafnarsvæði í Reykjavík. Landhelgisgæslan og sérsveit ríkislögreglustjóra tóku yfir stjórn skipsins og handtóku skipstjóra þess í gærkvöld eftir atvik við hvalveiðiskipið Hval 9.
Þegar Bandero kemur til hafnar færist málið frá Landhelgisgæslunni yfir til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sem tekur það til rannsóknar.
Skipið er á vegum Paul Watson-samtakanna sem halda því fram að það hafi siglt utan í Hval 9 í gærkvöldi og stöðvað það frá því að vera á hvalveiðum. Landhelgisgæslan segir skipið hafa nálgast Hval 9 og reynt að trufla för þess en hefur að öðru leyti ekki staðfest frásögnina.
Paul Watson-samtökin hafa ítrekað hótað hvalveiðiskipum Hvals hf. og sagst ætla að binda enda á hvalveiðar á Íslandi.
Þegar Bandero kom á Íslandsmið í júní sagði Ron Coronado leiðangursstjóri samtökin vera friðsöm og að öllum leiðum yrði beitt til að stöðva hvalveiðar án þess að beita ofbeldi. Coronado er einn tveggja sem sökktu hvalveiðiskipunum Hval 6 og 7 í Reykjavíkurhöfn árið 1986.
Málið er í þróun. Þegar fréttastofa náði tali af Ásgeiri Þór Ásgeirssyni, aðstoðarlögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu, sagðist hann lítið geta tjáð sig um málið og að hann hefði ekki upplýsingar um hver sakarefnin væru.