Bandaríkin leggja nýja innflutningstolla á vörur frá 85 ríkjum frá og með morgundeginum. Stjórn Donalds Trumps sakar ríkin um að hafa ekki gert nóg til að sporna gegn nauðungarvinnu í framleiðslu.
Tollarnir verða á bilinu 10–12,5%. Í tilkynningu stjórnvalda segir að tollarnir verði lagðir á 60 viðskiptalönd. Inni í þeirri tölu er Evrópusambandið, með sín 27 aðildarríki, og svo er litið á Hong Kong og Kína sem tvö ólík viðskiptalönd en Hong Kong tilheyrir Kína.
99,4% af öllum innflutningi til Bandaríkjanna kemur frá löndunum 85, að því er segir í frétt The Guardian. Nokkrir vöruflokkar eru þó undanþegnir nýju tollunum, þar á meðal olía og jarðgas, áburður og nokkrar tegundir matvæla.
Jamieson Greer, viðskiptafulltrúi Bandaríkjanna, segir markmiðið með tollunum vera að bregðast við mannréttindabrotum og tryggja sanngjarnari samkeppni.
Í febrúar lagði Donald Trump 10% toll á innflutning frá öllum ríkjum heims. Gildistími þeirra var 150 dagar og þeir falla því úr gildi á morgun.
Fréttin var uppfærð.