Bandarísk stjórnvöld eru bjartsýn á að samningur um að opna Hórmussund að nýju náist í dag eða á morgun, að sögn háttsetts embættismanns. Bjartsýnin varð til þess að Brent-hráolíuverð lækkaði um tæp 5% eða niður í tæpa 80 dali á tunnuna, að því er kemur fram á AFP-fréttastofunni.
Scott Bessent, fjármálaráðherra Bandaríkjanna, sagði í samtali við fréttastöðina CNBC að „líkur séu á að samningur náist“ á næstu klukkustundum. Donald Trump Bandaríkjaforseti talaði frá Hvíta húsinu í gær þar sem hann varaði við að þetta væri „síðasta tækifæri Írans áður en látið verður til skarar skríða“.
Þrátt fyrir að Trump hafi fullyrt að samningaviðræður eigi sér stað hefur utanríkisráðuneyti Írans alfarið neitað því.
Stjórnvöld í Teheran og Washington hafa staðið í stríði síðan 28. febrúar, þegar Bandaríkin og Ísrael gerðu fyrirvaralausar árásir á Íran. Þrátt fyrir vopnahlé og bráðabirgðasamkomulag á mánuðunum síðan hefur mistekist að binda enda á átökin.
Hórmússund, sem er lykilleið fyrir olíu- og gasbirgðir á heimsvísu, hefur ítrekað verið neistinn sem kveikir átökin að nýju.
Íran vill halda yfirráðum yfir sundinu og innheimta toll af skipum, en það eru völd sem landið beitti ekki fyrir stríðið og Bandaríkin eru alfarið mótfallin.
Marco Rubio utanríkisráðherra sagði í dag að Bandaríkin tækju þátt í viðræðum milli Óman og Írans um að auka skipaumferð um Hórmussund.
„Árangur hefur náðst í þeim viðræðum en ekkert lokasamkomulag er komið á enn þá. Við vonum að það gerist mjög fljótlega,“ sagði hann við fréttamenn.