Lögregla verst að mestu leyti frétta af rannsókn á banaslysi á Krísuvíkurvegi seint á sunnudagskvöld en meðal þess sem er á borði lögreglu eru viðtöl við vitni. Þrjú ungmenni létust í slysinu en þau voru í bíl sem hafnaði utan vegar. Bílnum var ekið suður Krýsuvíkurveg, nærri Bláfjallavegi, þegar slysið varð.
Banaslysið við Krýsuvíkurveg: Lögregla ræðir við vitni