Banaslysið hefur djúp áhrif á samnemendur
Nemendur í Menntaskólum við Sund eru í áfalli eftir að skólasystir þeirra lést í bílslysi um helgina. Skólameistari segir atvikið setja nám og skólahald úr skorðum, en nemendum bjóðist að fá stuðning til að takast á við framhaldið. Hugur þeirra sé hjá ástvinum hinna látnu.
„Við byrjuðum á því að funda með starfsfólkinu í hádeginu þegar áfallateymið var búið að hittast ásamt fulltrúa frá Rauða krossinum,“ útskýrir Helga Sigríður Þórsdóttir, rektor Menntaskólans við Sund.
Ung stúlka sem var nemandi í skólanum lést í bílslysi á Krýsuvíkurvegi um helgina ásamt tveimur öðrum ungmennum. Voru þau fædd á árunum 2005, 2007 og 2009.
Fregnirnar koma eins og reiðarslag en nemendur voru upplýstir um andlát skólasystur þeirra í gær. Var hringt meðal annars í forráðamenn nemenda og þeir sóttir eftir að fregnirnar urðu þeim ljósar.
„Við gengum í stofur hjá eldri nemendum og sögðum þeim frá atvikinu, þá eftir að við höfðum sent tölvupóst á forráðamenn þeirra sem yngri eru,“ útskýrir Helga.
Hún segir flesta nemendur hafa verið grunlausa um atvikið og því hafi fregnirnar sett skólahaldið í nokkurt uppnám.
Nýnemavikan nýbyrjuð
„Það var að byrja hér nýnemavika og nokkur skemmtun sem því hefur fylgt,“ segir Helga …