Heimili með 50 milljón króna lán gæti aukið haft um 250 þúsund krónum meira til ráðstöfunar á mánuði eða um 3 milljónir króna á ári ef vaxtakjör færðust nær því sem tíðkast á evrusvæðinu. Þá sé árlegur kostnaður við íslensku krónuna um 967–1.215 milljarðar króna, eða um 22–27% af landsframleiðslu. Þetta er mat Baldurs Péturssonar, fyrrverandi aðstoðarframkvæmdastjóra hjá Endurreisnar- og þróunarbanka Evrópu, EBRD, en hann hefur víðtæka innlenda og erlenda reynslu af greiningu, stefnumótun, alþjóðlegum fjármálum, EES- og ESB-málum, orku- og atvinnumálum.
Baldur segir heimili geta haft allt að 250 þúsund meira á mánuði með evru