Bændur í Danmörku fjölmenntu í morgun og mótmæltu hertum reglum um áburðarnotkun. Búist var við um 300 dráttarvélum til höfuðborgarinnar.
Samtök um sjálfbæran landbúnað í Danmörku boðuðu til mótmælanna og hvöttu bændur og aðra sem hafa hagsmuni af landbúnaði til að fjölmenna. Mótmælin eru við Kristjánsborg, þing landsins. Á næstunni verður þar önnur umræða um frumvarp um áburðarlög. Samtökin leggjast gegn lögunum og telja að þau kippi fótunum undan búrekstri margra. Grænmetisbændur hafa sérstaklega áhyggjur af því að þetta leiði til þess að þeir geti framleitt mun minna.
Mótmælin hófust í morgun og var búist við að um 300 dráttarvélum yrði ekið framhjá þinginu. Þá var búist við að um að um 1.000 manns kæmu í rútum til mótmælanna.
Áburðarlögin fela í sér strangari reglur um innihald áburðar, út frá umhverfissjónarmiðum. Ætlunin er að draga úr losun köfnunarefnis.
Samkvæmt núverandi reglum er hámark á magni áburðar sem notað er. Með nýju lögunum verður hámarkið miðað við losun. Verði framvarpið samþykkt taka lögin gildi um áramót.