Bæjarstjóri Ölfuss, Elliði Vignisson, gagnrýnir ríkisstjórnina vegna fjölgunar opinberra starfsmanna. Af um þúsund störfum sem hafi orðið til seinasta árið hafi 96 prósent þeirra verið hjá hinu opinbera en aðeins 38 á almennum vinnumarkaði. Þetta kemur fram í grein Elliða hjá Vísi þar sem hann varar við fjölgun opinberra starfsmanna en sleppir því að tilgreina að fjölgunin hefur fyrst og fremst átt sér stað hjá sveitarfélögunum.
Bæjarstjóri Ölfuss gagnrýnir fjölgun opinberra starfa sem fyrst og fremst hefur átt sér stað hjá sveitarfélögunum