Þetta kemur fram í textaspá Veðurstofu Íslands. Þar segir að búast megi við austanátt, 5-13 m/s, síðdegis og rigningu á sunnanverðu landinu. Það fari einnig að rigna norðanlands í kvöld.
Þá er spáð suðvestan- og sunnanátt, 5-10 m/s, á morgun. Þá er spáð skúrum og hita á bilinu 7 til 12 stig, en bjartviðri á Austfjörðum með hita að 15 stigum.
Í hugleiðingum veðurfræðings segir að síðdegis og í kvöld fari lægðardrag norður yfir landið, en það bæti aðeins í vind og fari að rigna, fyrst sunnantil. Í kjölfarið snúist í ákveðna sunnan- og suðvestanátt. Á morgun er útlit fyrir skúraveður, en að mestu þurrt og bjart á Austfjörðum. Þá verður hægari vindur á mánudag.