Ólafur Sigurðsson er matvælafræðingur á eftirlaunum en á eitt stærsta tónlistarsafn á Íslandi. Hann á yfir fjörutíu þúsund plötur í safni sínu sem hann er nú að selja á Barónstíg 27 enda getur hann ekki flutt fyrir magninu.
„Þetta er aulalegasti bófinn í bænum,“ segir hann þegar blaðamaður slær á þráðinn.
Eins og sést í meðfylgjandi myndbandi hafði þjófurinn í hyggju að komast undan með myndir af Bítlunum innan úr plötuumslagi Hvítu albúmsins en hafði ekki erindi sem erfiði. Um er að ræða eina af fyrstu pressum sjálftitluðu breiðskífu Bítlanna frá árinu 1968.
Óli furðar sig því að nokkrum manni detti í hug að „stela Bítlunum af Óla Bítlasala“. Hann vill endilega hafa hendur á hári þessa manns og kæra hann til lögreglu og biðlar til fólks sem gæti borið kennsl á manninn að hafa samband.