Körfuknattleiksfélagið Aþena hefur ákveðið að draga meistaraflokk sinn úr Bónusdeild kvenna, þrátt fyrir að liðið hafi aðeins tapað einum leik í 1. deild á síðasta tímabili og unnið sér sæti meðal bestu liða landsins.
Það kemur fram í yfirlýsingu frá Brynjari Karli Sigurðssyni á Facebook þar sem hann segir ákvörðunina hafa verið afar erfiða en nauðsynlega.
Samkvæmt Brynjari er ástæðan ekki fjárskortur heldur óleyst ágreiningur við Reykjavíkurborg um rekstrarsamning og aðstöðu fyrir félagið.
„Það er með mikilli sorg sem ég upplýsi okkar ótrúlega stuðningsfólk og verndarengla um að Aþena neyðist til að draga lið sitt úr Bónusdeild kvenna,“ skrifar Brynjar.
Segir borgina ekki hafa brugðist við
Brynjar segir Aþenu ítrekað hafa óskað eftir því að Reykjavíkurborg endurnýjaði rekstrarsamning félagsins og heimilaði því að byggja upp fundar- og kennslurými á eigin kostnað.
Hann fullyrðir að félagið sé ekki að óska eftir auknu fjármagni, heldur einfaldlega að fyrri samningur verði endurnýjaður og að félagið fái aðstöðu sem það telur nauðsynlega til áframhaldandi uppbyggingar.
Að hans sögn hefur nýr meirihluti borgarinnar vitað af stöðunni í fimm vikur án þess að leysa málið.
Segir starfið ná langt út fyrir íþróttir
Í yfirlýsingunni leggur Brynjar mikla áherslu á að starf Aþenu sé ekki aðeins hefðbundið íþróttastarf heldur einnig öflugt forvarnar- og félagsstarf.
Hann bendir meðal annars á að:
- Um 120 stúlkur í 111 Reykjavík taki þátt í starfi félagsins og að hópurinn stækki um um 30 börn á ári.
- Áður en Aþena hóf starfsemi í Austurbergi hafi aðeins 11 börn úr um 11.000 manna hverfi tekið þátt í skipulögðu íþróttastarfi þar.
- Félagið leggi áherslu á íslenskukennslu, stuðning við heimanám, leiðtogaþjálfun og öruggt félagslegt umhverfi fyrir börn sem oft hafi verið erfitt að ná til með hefðbundnu íþróttastarfi.
- Leikmenn meistaraflokksins séu jafnframt þjálfarar yngri flokka og burðarásar alls starfsins. Ef meistaraflokkurinn hverfi tapist ekki aðeins afrekslið heldur einnig þekking, reynsla og fyrirmyndir fyrir yngri iðkendur.
Segir afleiðingarnar geta orðið miklar
Brynjar segir hverja viku í óvissu hafa raunverulegar afleiðingar þar sem leikmenn, þjálfarar, foreldrar og styrktaraðilar þurfi að taka ákvarðanir um framtíð sína.
Hann segir það hafa tekið mörg ár að byggja félagið upp en aðeins nokkrar vikur að stefna því í hættu.
Í lok yfirlýsingarinnar segir hann að Aþena muni halda áfram að berjast fyrir áframhaldandi starfsemi félagsins og fyrir börnunum í hverfinu.
„Við munum berjast til síðasta blóðdropa fyrir ungviðið,“ skrifar Brynjar og bætir við að hann telji 111 Reykjavík vera kerfisbundið jaðarsett af Reykjavíkurborg.