Mette-Marit krónprinsessa Noregs er komin á biðlista eftir lungnaígræðslu. Þetta upplýsir norska konungshöllin í tilkynningu og jafnframt að lungnatrefjunin, sjúkdómurinn sem hrjáir krónprinsessuna, sé nú kominn á það stig að ógni lífi hennar.
Átta ár eru nú liðin síðan Mette-Marit greindist með sjúkdóminn sem smátt og smátt hefur hert greipar sínar um lungu hennar og þurfti hún öndunaraðstoðar við þegar hún hitti börn í hinni árlegu 17. maí skrúðgöngu í Ósló nú á þjóðhátíðardaginn.
Eins og mbl.is greindi nýlega frá stytti Hákon krónprins Japansheimsókn sína í byrjun vikunnar um dag og hélt heim til konu sinnar og eins hefur Ingrid Alexandra prinsessa gert hlé á námi sínu í Sydney til að vera móður sinni til halds og trausts.
Þróunin alvarleg
„Þróun lungnasjúkdóms krónprinsessunnar er alvarleg. Í kjölfar læknisfræðilegs mats er hún nú komin á lista yfir sjúklinga sem þurfa lungnaígræðslu eins skjótt og kostur er á,“ segir Are Holm, yfirlæknir og lungnasérfræðingur við Ríkissjúkrahúsið, í fréttatilkynningu.
Hann mun hitta Mette-Marit og lækni hennar á sjúkrahúsinu nú upp úr hádegi.
Afleiðingarnar ná víða
Samkvæmt því sem fram kemur í tilkynningu hallarinnar mun sjúkdómsástand krónprinsessunnar hafa ýmsar afleiðingar fyrir dagskrá og heimsóknir Hákonar krónprins og allrar fjölskyldunnar.
Hafa krónprinshjónin frestað veisluhöldum í tilefni silfurbrúðkaups síns í ágúst þegar þau eiga 25 ára brúðkaupsafmæli auk þess sem Mette-Marit verður ekki með í fylkisheimsókn til Agder í september.
Eins mun Hákon draga úr öllum lengri embættisferðum innan sem utan Noregs tímabilið fyrir og eftir lungnaskiptaaðgerð eiginkonu hans.