Ásta Lóa Þórsdóttir, þingkona Flokks fólksins og fyrrverandi ráðherra, segist óttast að sú fylking sem bíður lægri hlut í þjóðaratkvæðagreiðslunni um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið muni eiga erfitt með að sætta sig við niðurstöðuna, sérstaklega verði mjótt á munum.Hún hvetur landsmenn til að virða niðurstöðuna, hver sem hún verður, og segir mikilvægt að þjóðin taki höndum saman að kosningum loknum.Ásta Lóa gerir þjóðaratkvæðagreiðsluna í dag að umtalsefni í færslu á Facebook og segir hana til marks um styrk íslensks lýðræðis.
Ásta Lóa varar við því sem gæti gerst eftir kosningarnar