Mikel Arteta, stjóri Arsenal, var að vonum vonsvikinn á blaðamannafundi eftir tap liðsins gegn París SG í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í gær.
PSG hafði betur gegn Arsenal í vítakeppni, 4: 3, eftir 1:1-jafntefli í venjulegum leiktíma og framlengingu.
Á blaðamannafundinum taldi Arteta mikilvægt að leikmenn liðsins myndu fara í gegnum þennan sársauka og nýta hann sem eldsneyti fyrir næsta tímabil.
„Við þurfum að ganga í gegnum þennan sársauka, meðtaka hann og breyta honum í eldsneyti til að bæta okkur og ná nýjum hæðum,“ sagði Arteta á blaðamannafundi eftir leik.
Brasilíski varnarmaðurinn Gabriel brenndi af síðasta víti Arsenal í gær. Arteta sagði að Gabriel hefði sjálfur viljað taka fimmtu vítaspyrnu liðsins.
„Gabriel vildi taka víti númer fimm. Við höfðum æft og undirbúið okkur fyrir þessa stund,“ sagði Arteta.