Aron Pálmarsson var ráðinn aðalþjálfari karlaliðs FH í handbolta í gær en hann tekur við af Sigursteini Arndal.
Sigursteinn verður aðstoðarmaður Arons og skipta þeir því um hlutverk en Aron var aðstoðarþjálfari seinni hluta síðasta tímabils.
Aron var þá í þjálfarahlutverkinu í fyrsta skipti og hreifst svo mikið að hann vildi gerast aðalþjálfari. Eftir viðræður við FH var niðurstaðan sú að Aron og Sigursteinn myndu skipta um sæti.
FH var hins vegar ekki eina félagið sem Aron ræddi við því hann átti einnig í stuttum viðræðum við Aftureldingu.
„Ég get alveg viðurkennt það að það voru einhverjar smá viðræður. En samræður mínar við FH voru langt komnar á þeim tímapunkti en við getum orðað það þannig að ef þetta hefði dregist í mánuð í viðbót þá hefði ég opnað á fleiri möguleika,“ sagði Aron við Handkastið.