Árekstur varð undir Ingólfsfjalli rétt fyrir klukkan fjögur. Einar Sigurjónsson, aðalvarðstjóri lögreglunnar á Suðurlandi, staðfestir þetta. Frekari upplýsingar um málið liggja ekki fyrir að svo stöddu.
Suðurlandsvegi við Selfoss var lokað í austurátt um tíma og umferð beint um Ölfusveg en opnað hefur verið fyrir umferð aftur.
Fréttin verður uppfærð.