Bandaríkjaher og her Sádi Arabíu gerðu árásir á hernaðarlega innviði víða í Íran í nótt. Árásirnar eru sagðar svar við árásum Írana á herstöðvar Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum fyrr í kvöld samkvæmt færslu hersins á X.
Bandaríski herinn greindi frá því í annarri færslu á X fyrr í kvöld að herinn hefði skotið niður fjölda íranskra flugskeyta sem beint var að herstöðvum Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum og því hefðu árásir Írana mistekist. Ekki kemur fram að hvaða herstöð árásirnar beindust.
Árásir milli Bandaríkjanna og Írans lágu niðri yfir helgina og fram að árásum Írana fyrr í kvöld eftir nær tveggja vikna árásarlotu þeirra á milli.