Velski stórleikarinn Anthony Hopkins tón nýlega óvænta beygju á ferlinum þegar hann gaf út lag. Plata er væntanleg hjá hinum 88 ára gamla leikara.Hopkins hefur leikið síðan árið 1960 og hefur leikið í stórmyndum á borð við The Elephant Man, Silence of the Lambs, Nixon, Amistad og The Remains of the Day. Hann hefur einnig sankað að sér verðlaunum svo sem tveimur Óskarsverðlaunum og fjórum BAFTA verðlaunum, sem og verið aðlaður af drottningu fyrir framlag sitt til leiklistar.
Anthony Hopkins tekur óvænta beygju á ferlinum 88 ára gamall