Bresk kona og karl á fimmtugsaldri hafa verið dæmd í 6 ára fangelsi fyrir stórfellt fíkniefnabrot. Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjaness þann 23. júlí.Sakborningarnir heita Angela Lousie Derbyshire og Darren Christopher Rollisson. Þeim var gefið að sök að hafa flutt 31,7 kg af amfetamíni til Íslands frá Manchester 12. apríl 2026. Fíkniefnin, sem voru með 35–50% styrkleika og ætluð til söludreifingar í ágóðaskyni, fundust falin í tveimur ferðatöskum sem þau höfðu með sér við komuna til Keflavíkurflugvallar.
Angela og Darren dæmd í sex ára fangelsi