Þrúður Vilhjálmsdóttir leikkona lést á líknardeild Landspítalans sunnudaginn 5. júlí, 53 ára að aldri, eftir snörp og erfið veikindi.
Þrúður fæddist í Reykjavík 31. mars 1973 og ólst að hluta upp í Svíþjóð. Hún útskrifaðist frá Leiklistarskóla Íslands árið 1997 og lék sama ár Ófelíu í Hamlet í Þjóðleikhúsinu.
Á sviði lék hún meðal annars í fjölda sýninga Hafnarfjarðarleikhússins, þar á meðal Sölku ástarsögu, sem og hjá Leikfélagi Akureyrar og víðar. Í kvikmyndum er hún mörgum minnisstæð sem Hófí í 101 Reykjavík, auk hlutverka í Djúpinu, Foreldrum og fleiri myndum.
Í sjónvarpi lék hún meðal annars í Ófærð, Broti, Ástríði, Spaugstofunni og Áramótaskaupinu. Eftir hana liggja einnig margar talsetningar og hljóðbækur sem hún ljáði rödd sína. Síðar starfaði hún sem flugfreyja hjá Icelandair og leið vel í því starfi, þar sem einstaklega hlý nærvera hennar og smitandi bros nutu sín til fulls.
Foreldrar Þrúðar eru Anna Ragnhildur Ingólfsdóttir og Vilhjálmur Rafnsson, sem er látinn. Stjúpmóðir Þrúðar er Álfheiður Steinþórsdóttir og stjúpfaðir hennar um þrjátíu ára skeið var Bragi Halldórsson.
Þrúður eignaðist soninn Róbert Vilhjálm Ásgeirsson árið 2000 með Ásgeiri Halldórssyni. Eftirlifandi eiginmaður Þrúðar er Halldór Örn Óskarsson.
Útför Þrúðar fer fram frá Hallgrímskirkju miðvikudaginn 15. júlí kl. 13.