Guðjón Reykdal Óskarsson, doktor í líf- og læknavísindum og starfsmaður Íslenskrar erfðagreiningar, varð bráðkvaddur 18. maí.
Guðjón fæddist í Falun í Svíþjóð 1. maí 1991 og bjó þar til fimm ára aldurs. Þá flutti fjölskyldan á Selfoss. Guðjón er sonur hjónanna Óskars Reykdalssonar heilsugæslulæknis og Bryndísar Guðjónsdóttur framhaldsskólakennara. Hann á þrjár systur: Margréti Dís barnataugalækni; Sigríði Erlu, augnlækni í Svíþjóð; og Guðrúnu Nínu lungnalækni.
Guðjón var alla tíð fróðleiksfús og var afburðanámsmaður. Hann lauk stúdentsprófi frá Fjölbrautaskóla Suðurlands og varð dúx í sínum árgangi. Hann flutti til Reykjavíkur og hóf nám í lyfjafræði í Háskóla Íslands. Hann lauk þar bæði BS- og síðar MS-prófi í lyfjafræði og fór þá að vinna hjá Íslenskri erfðagreiningu og var þar að vinna að rannsóknum fyrir doktorsverkefni sitt. Hann varði doktorsritgerð sína í október 2021, en áður hafði hann fengið verðlaun fyrir að vera framúrskarandi ungur vísindamaður í Evrópu í taugalækningum og tók á móti verðlaununum í Hollandi.
Hann vann hjá Íslenskri erfðagreiningu til hinsta dags að rannsóknum og birti ritrýndar greinar á sínu sviði sem vöktu athygli víða.
Árið 2024 var hann valinn í hóp Framúrskarandi ungra Íslendinga fyrir fræðastörf sín og ekki síður fyrir að vera einstök fyrirmynd og sýna í verki hversu langt er hægt að ná þrátt fyrir að glíma við erfiðan sjúkdóm.
Guðjón fæddist með Duchenne-vöðvarýrnunarsjúkdóminn. Hann leit aldrei á sig sem sjúkling og var alla tíð kraftmikill og áhugasamur og vildi leggja sitt af mörkum og skrifaði m.a. greinar um sjúkdóminn. Hann hafði mikinn áhuga á vísindum, þjóðmálum, sagnfræði og tungumálum og lærði m.a. frönsku í frístundum og hafði gaman af því að ferðast. Þá lauk hann meistaraprófi í hagnýtri siðfræði síðasta vor.