„Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs í hádeginu. Brugðist var hratt við og var lögreglan með mikinn viðbúnað í ljósi tilkynningarinnar,“ segir í tilkynningu frá Gunnari Rúnari Sveinbjörnssyni, upplýsingafulltrúi Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Þar segir einnig að rannsókn málsins sé á frumstigi og því sé ekki unnt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.





