Ákvörðun Alþjóðaólympíunefndarinnar um að hleypa rússnesku nefndinni aftur inn, og þar með leyfa Rússum að taka þátt í Ólympíuleikunum á ný, stendur þrátt fyrir andstöðu Evrópuríkja. Þetta staðfesti fulltrúi nefndarinnar við fréttastofu Reuters.
Níu lönd í Evrópusambandinu skoruðu á sambandið að hætta að setja fjármagn í íþróttasambönd sem leyfa rússneskum og belarúskum íþróttamönnum að taka þátt í keppnum á sínum vegum.
Fyrir utan Alþjóðaólympíunefndina á þetta við um Alþjóðasundsambandið og Alþjóðaskylmingasambandið, en í dag tilkynnti Alþjóðahandknattleikssambandið að það hefði einnig aflétt banni sínu á þessa íþróttamenn.
Bann Alþjóðaólympíunefndarinnar hafði verið í gildi frá því í október 2023. Fulltrúi nefndarinnar segir ástæðuna fyrir því að banninu sé aflétt nú þá að Rússar hafi ógilt aðild íþróttasamtaka á hernumdum svæðum í Úkraínu að ólympíunefnd sinni. Sú aðild hafi verið upphaflega ástæðan fyrir banninu.
Nefndin lagði þó áherslu á að ákvörðunin væri tímabundin og fæli ekki í sér varanlega breytta afstöðu til Rússlands. Nefndin myndi fylgjast með þróun heimsmála og afleiðingum hennar.
Jafnframt er tekið fram að bann við að halda keppnir í Rússlandi sé áfram í gildi og rússnesku valdafólki verði ekki boðið á opinbera viðburði. Þá hafi hvorki verið tekin ákvörðun um notkun rússneska fánans né þjóðsöngsins á Ólympíuleikunum.