Þýski hægri harðlínuflokkurinn Alternative für Deutschland, AfD, er siguvegari í kosningum í sambandsríkinu Saxlandi-Anhalt. Ulrich Siegmund, oddviti flokksins í ríkinu, sagði flokkinn hafa skrifað sig í sögubækurnar og að hann hefði náð öllum sínum markmiðum.
Aðspurður sagði hann of snemmt að fullyrða að hann yrði forsætisráðherra. Þegar öll atkvæði hafa verið talin er AfD með tæp 44 prósent og tvöfaldar fylgi sitt frá síðustu kosningum. Flokkurinn nær þó ekki hreinum meirihluta á þinginu.
Kristilegir demókratar, flokkur kanslarans Friedrichs Merz, endaði með 17,2%. Það er næstum 20 prósentustigum minna en síðustu kosningum. Flokkurinn hefur stýrt Saxlandi-Anhalt frá árinu 2002. Forsætisráðherrann Sven Schulze hefur viðurkennt ósigur. Hann heldur til fundar við flokksforystuna í dag til að ákveða næstu skref.
Ulrich Siegmund, kveðst jafnvel opinn fyrir að halda kosningar að nýju takist ekki að mynda meirihluta byggðan á kosningum gærdagsins.
Allir helstu stjórnmálaflokkar Þýskalands hafa myndað svokallaðan „eldvegg“ gegn samstarfi við AfD. Það samkomulag hefur verið í gildi frá því flokkurinn kom fyrst mönnum á sambandsþingið í Berlín árið 2017.
Fréttin var uppfærð með lokatölum.