Almar Guðmundsson, bæjarstjóri í Garðabæ, er sjálfkjörinn næsti formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga. Hann var eini sveitarstjórnarmaðurinn sem skilaði inn framboðstilkynningu áður en frestur rann út á miðnætti.
Almar tekur við formennskunni af Jóni Birni Hákonarsyni á landsþingi sambandsins í september.
Almar hefur verið bæjarstjóri í Garðabæ í fjögur ár og setið í bæjarstjórn í tólf ár. Hann hefur setið í stjórnum Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins síðustu ár.