Þriðja degi aðalmeðferðar lauk í dag en Íris Helga er ákærð fyrir að hafa beitt Garp, dóttur hans, tvo aðra menn og fjölskyldur þeirra umfangsmiklu umsáturseinelti.
Við skýrslutökur í gær sagði Garpur að málið hafi haft mikil áhrif á hann og að hann hafi upplifað kvíða og félagsfælni í fyrsta skipti eftir að málið kom upp. Játaði Íris Helga því meðal annars fyrir dómi á mánudag að hafa sakað Garp um gróft kynferðislegt ofbeldi en síðan dregið ásakanirnar til baka.
Eftir að Garpur sagði frá áreitinu í fjölmiðlum á sínum tíma hafi hann fengið send alls konar TikTok-myndbönd þar sem birtar voru myndir af honum og dóttur hans. Sagði dóttir hans sjálf fyrir dómi að þar hafi verið talað mjög óþægilega og kynferðislega um hana og pabba hennar. Hún hafi meðal annars þurft að hætta í vinnu sinni í verslunarmiðstöð af ótta við að Íris Helga myndi mæta þangað.
„Ég átti að sitja heima á meðan Íris Helga hafði alla helgina til að dæla inn efni á samfélagmiðla“
Barnsmóðir Garps bar vitni í dag. Augljóst var að málið hefur tekið mikið á og brast hún í nokkur skipti í grát þegar hún lýsti því hvaða áhrif málið hafi haft á dóttur hennar.
„Ég er búin að fylgjast með þessu frá upphafi, búin að fylgjast með hvernig kona sem ég hef aldrei hitt og dóttir mín hafði aldrei hitt er búin að hafa umtalsverð áhrif á líf dóttur minnar og barnsföður. Hvernig síendurtekið áreiti hefur valdið endalausum kvíða, áhyggjum og þunglyndi. Ég er búinn að fylgjast með skilaboðum, áreiti á dóttur mína á samfélagsmiðlum og ég held ég viti allt sem þarf að vita um þetta mál,“ sagði hún fyrir dómi í dag.
Þá lýsti hún því þegar hún tilkynnti lögreglunni um áreiti gagnvart dóttur sinni.
„Einu sinni sá ég eitthvað á föstudagseftirmiðdegi, hringi í lögreglu til að tilkynna og lögreglan sagði að lögreglustöðin væri lokuð og ég ætti að hringja á mánudagsmorgun. Ég átti að sitja heima á meðan Íris Helga hafði alla helgina til að dæla inn efni á samfélagsmiðla og áreita dóttur mína sem var bara barn og hafði ekkert gert,“ sagði hún og hélt áfram að lýsa því hvernig skilaboð hafi borist til þáverandi kærasta, vinkonu og yfirmanns dóttur hennar.
Hún segir áhrifin sem þetta hafi haft á dóttur hennar vera mikil.
„Hún var að vinna í Smáralind þegar þetta byrjaði, var hrædd um að fara í vinnuna ef Íris myndi koma og sjá hana. Henni leið illa í vinnunni, hún fékk martraðir og hafði áhyggjur af því að Íris myndi mæta heim til þeirra. Henni finnst erfitt að aðrir tali um og viti þetta og á erfitt með að vera í skólanum,“ og bætir við að í eitt skipti hafi átt að fjalla um fréttamál í áfanga í skólanum og þá hafi mál Írisar Helgu verið til umfjöllunar í fjölmiðlum.
„Hún hafði áhyggjur af því að einhver myndi taka þetta fyrir, hún fékk kvíðakast og gat ekki mætt í tímann. Það endaði með því að hún mætir ekkert í skólann og er að falla í öllum áföngum. Fyrsta árið í menntaskóla, áður en þetta byrjaði, var allt annað. Síðan þá hefur henni gengið illa og hún glímir við mikinn kvíða og vanlíðan. Allt útaf þessari konu sem hún hefur aldrei hitt.“
„Óttinn er óháður því hvort hún hafi hitt okkur eða ekki“
Sjálf fékk konan skilaboð sem Íris Helga sendi til hennar í gegnum sína eigin samfélagsmiðla.
„Þau voru mjög furðuleg, hún talaði í hringi en var að ásaka Garp um að hafa komið illa fram við sig. Segja að hún vildi ekki vera hluti af okkar fjölskylduerjum sem meikaði engan sens, ég hafði ekki blandað henni inn í neitt og það var ekkert til að blanda henni inn í.“
Í kjölfarið hafi hún tekið skjáskot og sent á Garp og tók hún fram að þau Garpur hafi alltaf átt í góðum samskiptum. Þá hafi hún séð skilaboð sem dóttir hennar hafi fengið sem öll voru send frá nafnlausum notendareikningum.
Aðspurð sagði konan, eftir spurningu frá verjanda Írisar Helgu, að hún hafi aldrei hitt Írisi og vissi ekki til þess að dóttir hennar hafi gert það.
„Óttinn er óháður því hvort hún hafi hitt okkur eða ekki,“ sagði konan.
„Hefur hún setið um ykkur?“ spurði Helga Vala Helgadóttir verjandi þá.
„Ekki svo ég viti, en hver veit.“