Sjö vikur eru frá þingkosningum í Svíþjóð og enn hefur ekki tekist að mynda nýja ríkisstjórn. Rauðgræna blokkin, sem samanstendur af fjórum vinstri- og miðjuflokkum; Jafnaðarmannaflokknum, Miðflokknum, Vinstri og Græningjum; tryggði sér nauman meirihluta á þingi í kosningunum gegn borgaralegu blokkinni og sitjandi ríkisstjórn.
Ágreiningur milli tveggja flokka í rauðgrænu blokkinni hefur komið í veg fyrir að þeir nái saman um stjórnarsamstarf. Rætt var við Mats Knutson, stjórnmálaskýranda hjá sænska ríkisútvarpinu, í kvöldfréttum í gær.
„Það er allt frosið. Þetta snýst um að Miðflokkurinn vill alls ekki vera í stjórn með Vinstriflokknum og Vinstriflokkurinn krefst þess að fá ráðherrasæti og hafa eitthvað um málin að segja. Þó að flokkarnir tilheyri sömu stjórnarblokkinni þá er allt í járnum,“ segir Knutson.
Ljóst var fyrir kosningar að ef rauðgræna blokkin fengi meirihluta á þingi yrði stjórnarmyndun erfið. Miðflokkurinn sagðist margsinnis í kosningabaráttunni útiloka að sitja í ríkisstjórn með Vinstri og Svíþjóðardemókrötum, sem er sá flokkur sem er lengst til hægri í sænskri pólitík. Miðflokkurinn skilgreinir sig sem miðjuflokk og lítur á þessa tvo flokka sem öfgaflokka. Miðjuflokkurinn tilheyrði áður borgaralegu blokkinni en sleit sig frá henni vegna andstöðu við Svíþjóðardemókrata sem studdu síðustu ríkisstjórn, Tidö-stjórnina undir forystu Ulfs Kristersson, formanns Moderaterna.
Knutsson segir að það eina sem gæti leyst úr stjórnarkreppunni sé hótun um að boða aftur til kosninga.
„Í Svíþjóð veitir forseti þingsins tækifæri til að kjósa um forsætisráðherra fjórum sinnum og renni það út í sandinn verður að boða til aukakosninga. Flokkarnir í rauðgrænu blokkinni vilja það alls ekki. Þeir sigruðu í síðustu kosningum með naumum mun. Við sjáum að þeir missa fylgi í nýjustu skoðanakönnunum þar sem kjósendur eru óánægðir með að þeir geti ekki myndað stjórn.“
Magdalenu Anderson formanni Jafnaðarmannaflokksins, stærsta flokksins í rauðgrænu blokkinni, hefur mistekist í tvígang að mynda ríkisstjórn. Henni var hafnað í atkvæðagreiðslu á þingi um hana sem forsætisráðherra 15. október. Nú eru þrjár tilraunir eftir.
Andreas Norlén, forseti þingsins, tilkynnti á blaðamannafundi í síðustu viku að næst yrði kosið um Elisabeth Thand Ringqvist, formann Miðflokksins, sem forsætisráðherra. Atkvæðagreiðslan verður á morgun.
Ringquist hefur sagt opinberlega að hún hafi ekki áhuga á sæti forsætisráðherra og Knutson telur öruggt að henni verði hafnað.
Ólíklegt að Ulf Kristersson takist að mynda ríkisstjórn
Norlén sagði einnig að ef Ringqvist mistekst fái Ulf Kristersson, núverandi forsætisráðherra Svíþjóðar, umboðið. Knutson telur afar litlar líkur á að Kristersson takist að mynda ríkisstjórn þar sem hann er ekki með meirihluta á þingi á bak við sig.
„Miðflokkurinn hefur kosið að vera í rauðgrænu blokkinni og þau þyrftu að skipta alveg um skoðun til að hann næði að mynda ríkisstjórn þannig að ég tel afar ólíklegt að hann standi uppi sem forsætisráðherra.“
Útlit er fyrir að stjórnarkreppan haldi áfram að dýpka og líkur á að efnt verði til aukakosninga aukast sífellt. Þær hafa ekki verið haldnar í Svíþjóð síðan 1958.
„Ég er á því að nú beri svo mikið í milli Vinstri- og Miðflokksins og ágreiningurinn svo djúpstæður að líkurnar á aukakosningum hafa aukist bara núna síðastliðna viku. Vegna þess að flokkarnir tveir vilja ekki slá af kröfum sínum og vinna saman og sýna engin merki þess að hnika til rauðu strikunum. Þvert á móti er lagst dýpra í skotgrafirnar og því dýpra sem farið er í þær, því erfiðara er að komast úr þeim. Það er staðan nú. Ég tel samt að þeim takist að leysa úr þessu en ég hef enga hugmynd um hvernig meðan svo mikið ber í milli.“
Verður afar erfitt stjórnarsamstarf
Knutson segir ljóst að nái rauðgræna blokkin að lokum saman um stjórnarsamstarf verði það afar erfitt.
„Núna eru deilurnar svona harðar og það er bara verið að takast á um hver á að sitja í stjórn. Þar að auki er svo stór hugmyndafræðilegur ágreiningur á milli þessara flokka. Miðflokkurinn er frjálslyndur borgaraflokkur sem leggur áherslu á lægri skatta á fyrirtæki og styður einkarekstur á meðan Vinstriflokkurinn, sem er gamli kommúnistaflokkurinn í Svíþjóð, er byggður á allt öðrum grunni og mjög ólíkum efnahagslegum áherslum. Það er því alveg ljóst að þetta verður mjög erfitt samstarf.“