Mikill viðbúnaður er í Glerárdal, suðvestur af Akureyri. Allar björgunarsveitir í Eyjafirði voru kallaðar út ásamt lögreglu og sjúkraflutningamönnum.
Upplýsingafulltrúi Landsbjargar staðfestir þetta við mbl.is.
Varðstjóri hjá Lögreglunni á Norðurlandi eystra segir útkallið hafa borist rétt fyrir klukkan hálf sjö vegna slasaðs einstaklings í Glerárdal.
Útkallið hafi verið skilgreint sem F2, sem sé næsthæsta forgangsstig útkalla. Ekki sé unnt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.