Dómsmálaráðherra hefur ekki afskipti af einstökum ákvörðunum sjálfstæðra embætta lögreglu, og því mun Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra ekki hafa afskipti af kaupum lögreglunnar á Suðurlandi á úlpum frá kínverska netsölutorginu AliExpress.
Þetta kemur fram í skriflegu svari dómsmálaráðuneytisins við fyrirspurn mbl.is.
Ráðherra var þar innt svara við því hvort endurskoða og samræma bæri kaupferla búnaðar til handa lögreglu, sérstaklega í ljósi þess að kaupin virtust hafa farið fram hjá ríkislögreglustjóra þvert á 10. grein reglugerðar nr. 690/2021 um einkennisfatnað lögreglunnar.
„Eins og komið hefur fram í svörum frá embætti ríkislögreglustjóra um kaupin á úlpunum er hvert lögregluembætti sjálfstætt og getur því tekið sjálfstæðar ákvarðanir um kaup á vörum og þjónustu,“ segir jafnframt í svari ráðuneytisins.