Leik- og söngkonan Hilary Duff sagði það hafa verið „algjöra geðveiki“ að eignast börn áður en hún giftist eiginmanni sínum, tónlistarmanninum Matthew Koma. Hún segist þó ekki sjá eftir ákvörðuninni.
Duff, sem er 38 ára, ræddi samband þeirra í þættinum The Morgan Stewart Show sem var sýndur á dögunum. Hún og Koma gengu í hjónaband í desember árið 2019, rúmu ári eftir að dóttir þeirra, Banks, kom í heiminn.
Duff og Koma kynntust árið 2015 þegar þau unnu saman að plötunni Breathe. Samband þeirra var þó stormasamt til að byrja með og hættu þau saman tvívegis áður en þau ákváðu að gifta sig.
Duff og Koma kynntust árið 2015 þegar þau unnu saman að plötunni Breathe. Samband þeirra var þó stormasamt til að byrja með og þau hættu saman tvívegis áður en þau ákváðu að gifta sig.
„Við byrjuðum aftur saman og hugsuðum að við ættum að eignast barn, sem er geðveiki,“ sagði Duff í viðtalinu.
„Algjör geðveiki. Ég held að þremur vikum síðar hafi ég verið ólétt að Banks.“
Leikkonan rifjaði upp að þau hefðu fyrst verið skilin að í heilt ár og síðar aftur í sex mánuði áður en þau tóku saman á ný.
Duff segir að brúðkaupið hafi verið sérstaklega eftirminnilegt þar sem dóttir þeirra Banks gekk með henni upp að altarinu. Duff átti fyrir soninn Luca.
„Við eignuðumst barnið og giftum okkur síðan, sem var í raun mjög skemmtilegt,“ sagði Duff. „Banks gekk með mér upp að altarinu. Það var alveg yndislegt. Luca gekk með Matt.“
Nú fjögurra barna móðir
Duff á fjögur börn alls. Hún á soninn Luca, 14 ára, með fyrrverandi eiginmanni sínum Mike Comrie, og dæturnar Banks Violet, Mae James og Townes Meadow með Koma.
Nýlega ræddi Duff einnig um móðurhlutverkið í þættinum The Jennifer Hudson Show og sagði yngri börnin sín vera hennar stærstu aðdáendur.
„Þau vilja mæta á alla tónleikana og eru alveg heilluð þegar konfettíbyssurnar fara í gang eða þegar ég skipti um föt á sviðinu,“ sagði hún.
Hún viðurkenndi þó að táningssonurinn Luca væri ekki jafn auðhrifinn.
„Ég held samt að honum finnist ég ekki alveg vandræðaleg enn þá,“ sagði Duff og bætti við að vinir sonar hennar sýndu henni oft mikinn áhuga þar sem þeir hefðu líklega séð hana á TikTok.
Duff gaf út nýjustu plötu sína, Luck... or Something, í febrúar og hyggst hefja tónleikaferðina Lucky Me Tour í júní.