Karlmaður hefur verið ákærður fyrir manndráp af gáleysi og umferðarlagabrot, en maðurinn ók lyftara inn í sendibifreið á gatnamótum Lækjargötu og Vonarstrætis í september árið 2023. Ökumaður sendibifreiðarinnar, þriggja barna faðir á fertugsaldri, lést samstundis er gafflar lyftarans gengu inn í farþegarýmið. Mbl.is greinir frá ákærunni.
Hinn ákærði var undir áhrifum örvandi efna þegar slysið átti sér stað en á upptöku úr eftirlitsmyndavél við slysstað má sjá að gafflarnir á lyftaranum voru nánast láréttir um einni sekúndu fyrir slysið. Þá sést að þeir byrjuðu að lyftast að framan rétt fyrir slysið og lyftust áfram í slysinu eftir að vinnuvélin byrjaði að rekast á sendibifreiðina. Eftir slysið var hæð gafflanna um 0,6 metrar frá jörðu næst vinnuvélinni og hölluðu þeir upp. Þeir stungust í hlið sendibifreiðarinnar í um 0,7-0,8 metra hæð frá jörðu og fremsti hluti þeirra var í rúmlega 0,9 metra hæð inni í bifreiðinni eftir áreksturinn.
Hinn ákærði slasaðist ekki alvarlega við áreksturinn.
Eiginkona hins látna og börn fara fram á 28 milljónir í skaðabætur en málið verður rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í október.
Sjá einnig: Fíkniefnaneysla meginorsök banaslyssins í Lækjargötu