Ákærður fyrir að nauðga 14 konum
Lögregla fékk ábendingu um að 68 ára gamall karlmaður væri grunaður raðnauðgari. Við húsleit fundust myndskeið af honum nauðga konum sem hann hafði byrlað ólyfjan. Hann hefur verið ákærður fyrir brot gegn 14 konum, en alls hafa 58 konur verið nefndar í tengslum við málið.
68 ára gamall maður frá Berlín hefur verið ákærður fyrir að byrla 14 konum ólyfjan, nauðga þeim og taka verknaðinn upp, að sögn þýskra saksóknara. Konunum kynntist hann í gegnum stefnumótaöpp.
Ekkert fórnarlambanna mundi eftir meintum brotum, en þau komust upp þegar lögreglan gerði húsleit í íbúð hins grunaða og lagði hald á minniskubba sem innihéldu „fjölmörg myndskeið af kynferðisbrotum,“ að sögn saksóknara.
„Hinum ákærða er gefið að sök hafa byrlað konunum svefnlyf ásamt áfengi og síðan nauðgað þeim,“ sagði í yfirlýsingu frá saksóknaraembættinu í Berlín.
„Hann er sagður hafa kynnst konunum í gegnum stefnumótavefi á netinu.“
58 konur nefndar
Alls hafa 58 konur verið nefndar í tengslum við meint brot mannsins, en ákærurnar sem lagðar hafa verið fram til þessa varða 22 nauðganir gegn 14 konum, að sögn saksóknara.
Yfirvöld fengu ábendingu um málið frá lögreglunni í Neðra-Saxlandi sem var að rannsaka svipuð brot sem annar maður hafði …