Viðvörun er í gildi vegna mikillar ölduhæðar en líkur eru á hárri sjávarstöðu og jafnvel sjávarflóðum við suður-, austur- og norðurströndina. Veðurfræðingur á Veðurstofunni, segir ekki sé hægt að útiloka að sjór gangi á land. Rætt verður einnig við upplýsingafulltrúa Landsbjargar í beinni útsendingu um verkefni morgunsins hjá björgunarsveitum.
Við greinum einnig frá tilkynningum um tjón vegna veðursins hafa borist tryggingafélaginu VÍS. Sérfræðingur hjá félaginu segir mikilvægt að fólk hreinsi lauf frá niðurföllum og rennum til að koma í veg fyrir að vatn leki inn í hús.
Þá sótti Tómas Arnar fréttamaður upphaf þings ASÍ í morgun. Spenna er á þinginu vegna ágreinings um fjölda varaforseta sambandsins. Formaður Eflingar segir það vera til skoðunar að stéttarfélagið dragi sig úr ASÍ vegna þessa. Fréttastofa ræðir við frambjóðendur til forseta og varaforseta ASÍ.
Þetta og fleira í hádegisfréttum á Bylgjunni á slaginu tólf.