Harðlínuflokkur á hægri vængnum, sem er afsprengi nýnasistaflokks á Grikklandi, jók fylgi sitt töluvert í þingkosningum á Kýpur í gær. Sérfræðingur segir úrslitin marka endalok 50 ára valdatíðar hinn hefðbundnu flokka.
Úrslit kosninganna voru þau að mið-hægri flokkurinn DISY fékk rúm 27% atkvæða og Verkamannaflokkurinn, sem er í raun kommúnistaflokkur, hlaut tæp 24%. Þriðji stærsti flokkurinn er ELAM, þjóðernissinnaður flokkur sem er afsprengi gríska nýnasistaflokksins Gullin dögun, sem hefur verið bannaður þar í landi. Hann fékk tæplega 11%. Megináhersla þeirra í kosningunum var á takmörkun á komu innflytjenda.
Nokkrir nýir flokkar náðu inn á þing, meðal annars flokkurinn Beint lýðræði, sem Fidias Panayioutu áhrifavaldur á Youtube stýrir en hann mætti alltaf með trúðsnef á kosningafundi. Auk hægri afla óx þeim flokkum ásmegin sem vilja draga úr opinberri starfsemi til að minnka spillingu, en spillingarmál og hár framfærslukostnaður voru áberandi mál í kosningabaráttunni.
Forsetinn missir stuðning
Í þessum kosningum voru valdir 56 af 80 þingmönnum fulltrúadeildar þingsins. Hin 24 þingsætin tilheyra tyrkneskum Kýpverjum en þeir hafa dregið sig úr öllum stofnunum í landinu og því eru þau sæti óskipuð.
Forseti og ríkisstjórn fara með völd í landinu og ríkisstjórnin þarf ekki að treysta á þingmeirihluta til að halda völdum. Þingið þarf hins vegar að samþykkja lög og fjárveitingar. Úrslitin eru talin forsmekkurinn að því sem koma skal í forsetakosningum í landinu sem fara fram eftir tvö ár. Tveir af þremur flokkum sem studdu forsetann Nikos Christodoulides náðu ekki manni á þing og sá þriðji tapaði fylgi. Framtíð forsetans fer því eftir því hvernig honum gengur að afla stuðnings nýrra flokka.
Harry Tzimitras, sem stýrir rannsóknastofnun í málefnum Kýpur, segir úrslitin marka endalok valdatímabils stjórnmálaflokka sem hafa verið hluti af stjórnmálalífi landsins í 50 ár.