Fjölmenni var á samkomu samtakanna Áfram Ísland á Austurvelli á fimmtudag, tveimur dögum fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið.
Samtökin segja hátt í þrjú þúsund manns hafa lagt leið sína á Austurvöll.
Þekkt andlit úr ólíkum áttum
Fjöldi þjóðþekktra einstaklinga var á meðal gesta. Á meðfylgjandi mynd sjást frá vinstri Maggi Mix, Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, Snorri Másson, þingmaður og varaformaður Miðflokksins, og Samúel Guðmundsson, en Samúel hefur vakið mikla athygli að undanförnu eftir að hann tók þátt í hörðum kappræðum við rabbínann Shmuley Boteach í þætti Piers Morgan.
Katrín og Áslaug Arna tóku til máls
Á meðal þeirra sem ávörpuðu samkomuna voru Katrín Jakobsdóttir, fyrrverandi forsætisráðherra, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, fyrrverandi ráðherra og þingmaður, Auður Eir Vilhjálmsdóttir og Sigríður María Egilsdóttir.
Fulltrúar ungliðahreyfingarinnar X-Nei tóku einnig til máls en Halldór Benjamín Þorbergsson stýrði samkomunni. Boðið var upp á pylsur og kandífloss og Ágúst Þór Brynjarsson brekkusöngvari tók lagið í lokin.