Tæplega 42.000 landsmenn undirrituðu undirskriftalista gegn kílómetragjaldinu sem afhentur var Daða Má Kristóferssyni fjármálaráðherra í ráðuneyti hans í dag.
María Csizmás, ábyrgðarmaður farsæla listans, gagnrýnir framkvæmd gjaldsins, meðal annars vegna mismælinga og sekta.
Aðspurð segist hún upplifa sem svo að fjármálaráðherra sé opinn fyrir undirskriftalistanum og tillögunum að breytingum sem honum fylgja.
„Mér sýnist Daði vera með opinn huga, hann ætlar að lesa það sem við skrifuðum. Það er mikilvægt að nota þessar umsagnir fyrir næstu, vonandi, breytingu,“ segir hún.
Hópvinna með mörg þúsund manns
Aðspurð segir María það hafa verið skyndiákvörðun að hefja söfnunina. Hún hafi ekki verið ein um að telja framkvæmdina ekki góða og hugsunina á bak við kílómetragjaldið ekki skila sér.
„Ég heyrði bara að allir væru óánægðir og fjölskyldan mín var það líka. Þannig að ég tók ákvörðun um að setja saman rökstuðning. Af hverju er þetta ekki rétt? Af hverju eigum við að mótmæla þessu?“ segir hún.
Hún hafi þá safnað saman upplýsingum og deilt með Facebook-hópnum Kílómetragjaldið og í kjölfarið stofnað undirskriftalistann á island.is.
„Þetta var eiginlega hópvinna með þessum mörg þúsund manns,“ segir María en 13.200 meðlimir eru í hópnum.
„Ég vil bara þakka fólkinu í hópnum fyrir að leyfa mér að tjá mig á síðunni. Daginn eftir að ég deildi listanum voru komnar 5-6 þúsund undirskriftir og þær eru núna tæplega 42.000.“
„Bíll er öryggistæki hér á landi“
„Framkvæmdin er ekki rétt,“ heldur María áfram.
Þeir sem undirritað hafi listann treysti ekki á að skattpeningar sínir fari á réttan stað.
„Bíll er öryggistæki hér á landi og ógnin af því að missa bílinn vegna einhvers konar skatts sem þú greiðir ekki, sem þú skilur ekki, sem er kannski ofrukkaður og eiginlega bara að lána pening til ríkisins, er mikil.
Þú getur fengið seðil með ofrukkun og fengið strax bréf frá Skattinum um að þú getir lent í Kredit-Info ef þú greiðir það ekki. Okkur finnst þetta alltof harkaleg framkoma,“ segir hún.
Mælarnir ekki löggiltir
Daði Freyr Ólafsson vann að undirskriftasöfnuninni með Maríu. Hann segir kílómetragjaldið ósanngjarnt gagnvart þeim sem eru á minni og eyðslugrennri bílum og þar að auki sé það hálfgerður landsbyggðarskattur, þar sem íbúar á höfuðborgarsvæðinu hafi meira val um almenningssamgöngur.
„Það er tiltölulega auðvelt að hjóla eða labba hérna innanbæjar og öll þjónusta á Íslandi er meira eða minna hérna á höfuðborgarsvæðinu,“ segir hann.
„Annað er að mælar í bílum eru ekki löggiltir. Þannig að það getur verið rosalega mikill mismunur á milli bíla hvernig mælingarnar koma út og hvað þú þarft að greiða.“
