Steinþór Helgi Arnsteinsson veitingamaður segir óeðlilegt hve há áfengisgjöld séu samanborið við aðra neysluskatta.
Steinþór Helgi rekur barinn Röntgen, veitingastaðinn Skreið og Austurbæjarbíó.
Segir Steinþór Helgi að gjöldin hafi töluverð áhrif á veitingarekstur enda sé áfengisgjöld hér á landi hærri en nokkurs staðar annars staðar, nema í múslimalöndum þar sem áfengi sé beinlínis bannað.
Skattur á þá lægst launuðu
„Ég er ekkert á móti áfengisgjöldum en mér finnst mjög óeðlilegt að það sé tekinn einn vöruflokkur og hann sé með langhæstu vöruskatta af öllum. Þetta eru langhæstu vöruskattarnir,“ segir Steinþór.
Steinþór segir allar rannsóknir benda til þess að verð hafi engin áhrif á neysluhegðum áfengissjúklinga og því séu áfengisgjöldin ekki að ná því markmiði sem þeim er ætlað sem neysluskattur. Auk þess virðist gjöldin ekki skila sér til meðferðarúrræða sem á þurfi að halda.
Bendir hann á að áfengisgjöldin séu í rauninni skattur á þá lægst launuðu. Bjór og vín, sem annars staðar væri ódýrt, verði rándýrt en dýrar flöskur hækki ekki jafn mikið í verði.
„Það er rosa erfitt að gera veitingastað eða bar og reyna að hafa lágt verð út af því að fastur kostnaður, bara áfengisgjöld, leiga, og leyfisgjöld, gerir það að verkum að þú getur nánast ekki haft einhvern stað, þótt þu leggir þig fram við það, ódýrann af því að hlutir verða að kosta x mikið til að kovera beisik skatta og gjöld,“ segir Steinþór.