Flestir Íslendingar þrá að komast í sól og á strönd á sumrin en leikkonan Shay Mitchell ætlar að forðast ströndin í sumarfríinu. Mitchell leikur í endurgerð þáttanna um strandverði og er greinilega komin með nóg af ströndinni eftir tökur.
Leikkonan sem er frá Kanda og er hvað þekktust fyrir hlutverk sitt í Pretty Little Liars. Hún á tvö börn sem eru sex ára og fjögurra ára og ætlar að njóta þess að vera með þeim í sumar.
„Sumarplanið mitt er að ferðast með fjölskyldunni minni,“ sagði Mitchell í viðtali við People en þættirnir um strandverðina eru teknir upp í Los Angeles og getur leikkonan verið heima á kvöldin. „En sumarplanið mitt er örugglega bara að fara í flugvél og ferðast, örugglega eitthvert þar sem er ekki strönd.“
