Dómsmálaráðherra áformar að fækka lögreglustjóraembættum úr níu í fjögur eða fimm.
Unnið er að útfærslu breytinga þessa efnis í ráðuneytinu og áformað er að frumvarp sem kveður á um breytingarnar verði lagt fram á Alþingi með haustinu. Tilgangur breytinganna er að mynda stærri og öflugri embætti um land allt, en sameining lögregluembætta á suðvesturhorni landsins verður skoðuð sérstaklega.
Svo segir í tilkynningu sem birtist á vef dómsmálaráðuneytisins í dag þar sem einnig kemur fram að ráðherrann hafi kynnt fyrirhugaðar breytingar á skipulagi lögreglunnar á fundi lögregluráðs fyrr í þessari viku.
Þar kemur og fram að breytingarnar miði að því að styrkja lögregluna á landsvísu, efla löggæslu og bæta skilvirkni. Ráðherrann kynnti þessi áform sín í ríkisstjórn sl. föstudag.
Lögreglustöðvum og starfsfólki á ekki að fækka
Þar kemur og fram að breytingarnar eigi ekki að verða til þess að starfsfólki embættanna eða lögreglustöðvum fækki.
„Þvert á móti er það áfram skýr vilji minn að efla löggæslu og halda áfram að fjölga lögreglumönnum. Markmiðið er skýrt; að til verði stærri og sterkari embætti,“ er haft eftir Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra í tilkynningunni á vef ráðuneytisins.
Þar er einnig haft eftir ráðherranum að hún telji umræddar breytingar verða til hagsbóta fyrir lögreglu í landinu öllu sem og fyrir almenning.
„Síðustu breytingar á skipulagi lögreglu voru gerðar fyrir rúmum tíu árum og nú er tími til að taka næsta skref. Verkefni lögreglu hafa breyst, samfélagið hefur breyst og við þurfum að styrkja embættin til framtíðar. Með þessu verða til öflugri lögregluembætti á landinu öllu sem geta betur tekist á við breyttan veruleika, bæði innanlands og á alþjóðavísu,“ er haft eftir dómsmálaráðherra.
Fram kemur að ráðherrann leggi mikla áherslu á náið samráð í tengslum við skipulagsbreytingarnar. Af þeirri ástæðu hafi verið skipaður samráðshópur sem gegni lykilhlutverki við útfærslu þeirra.
Í hópnum eiga sæti þau Drífa Kristín Sigurðardóttir, skrifstofustjóri á skrifstofu löggæslumála í dómsmálaráðuneytinu, Páll Winkel, ráðuneytisstjóri dómsmálaráðuneytisins, Halla Bergþóra Björnsdóttir ríkislögreglustjóri, Grímur Hergeirsson, formaður Lögreglustjórafélags Íslands, og Fjölnir Sæmundsson, formaður Landssambands lögreglumanna.