Ætla að leyfa Úkraínu að framleiða Patriot-flaugar

Ætla að leyfa Úkraínu að framleiða Patriot-flaugar

Ætla að leyfa Úkraínu að framleiða Patriot-flaugar

Volodymyr Zelensky virðist ánægður með fundi dagsins. Eftir fundinn með Trump birti hann mynd á X frá Ankara og skrifaði undir að saman væri hægt að áorka miklu.

Bandaríkin ætla að leyfa Úkraínumönnum að framleiða Patriot-flaugar. Mikill skortur hefur verið á flaugunum í Úkraínu að undanförnu. Þær eru hluti af loftvarnakerfi landsins og nýttar í þeim tilgangi að skjóta niður vopn sem Rússar beita í loftárásum.

„Eitt af því sem við ætlum að ræða er að gefa ykkur leyfi til að framleiða Patriot-flaugar. Það er frekar kúl, ekki satt? Með þessu getið þið hætt að kvarta yfir því að við séum ekki að gefa þeim nóg,“ sagði Trump þegar hann sat við hlið Volodymyrs Zelenskys Úkraínuforseta á leiðtogafundi NATO í Ankara í dag.

Trump sagði þó að fyrirtækið sem framleiðir Patriot-flaugarnar hefði ekki verið látið vita af þessari ákvörðun en að það reddist.

Úkraínuher hefur að undanförnu hert mjög árásir á olíuinnviði í Rússlandi og kominn er upp skortur á eldsneyti í landinu. Trump sagði þær árásir mögulega skref í þá átt að ljúka stríðinu. Þá sagðist Trump hafa þá staðföstu trú að bæði Zelensky og Pútín vilji ljúka stríðinu.

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra Íslands segir að andinn á leiðtogafundi NATO í Ankara hafi verið góður. „Það var mikið talað um samstöðu, um styrkleika bandalagsins,“ sagði hún í viðtali við Björn Malmquist fréttamann sem er á leiðtogafundinum.

Það var titringur fyrir fundinn enda hafa Bandaríkin gagnrýnt önnur aðildarríki fyrir að verja ekki nægu fé til öryggis- og varnarmála.

Lars Løkke Rasmussen, utanríkisráðherra Danmerkur, brást í dag við ítrekuðum yfirlýsingum Trumps um að Bandaríkin eigi að ráða yfir Grænlandi. „Ég tók eftir yfirlýsingum forsetans í gær. Þær staðfesta það sem við höfum allan tímann vitað: Það er, að ef Trump mætti ráða öllu þá yrði Grænland hluti af Bandaríkjunum á morgun. En Trump ræður ekki öllu,“ sagði Rasmussen.

Þá sagði utanríkisráðherrann að Grænlendingar hefðu ekki nein áform um að verða hluti af Bandaríkjunum.

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur verið yfirlýsingaglaður á leiðtogafundi NATO í dag. Nú rétt í þessu hótaði hann Írönum hörðum árásum í kvöld. Fyrr í dag lýsti hann því yfir að viljayfirlýsing um vopnahlé væri runnin út í sandinn.

„Við ætlum að gera harðar árásir á þá í kvöld. Þeir brjóta samkomulagið á hverjum degi,“ sagði Trump stuttu áður en hann hóf fund með Volodymyr Zelensky, forseta Úkraínu, sem einnig er á leiðtogafundinum í Ankara.

Öll aðildarríki Atlantshafsbandalagsins ítrekuðu í ályktun óhagganlega samstöðu um 5. grein sáttmála bandalagsins. Hún kveður á um að árás á eitt ríki jafngildi árás á öll. Bandaríkin eru meðal ríkja sem eiga aðild að ályktuninni.

„Við, leiðtogar aðildarríkja NATO, höfum komið saman í Ankara til að ítreka óhagganlega samstöðu um sameiginlegar varnir sem 5. greinin kveður á um,“ segir í ályktuninni.

Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að það hafi verið „mikil ást“ í fundarherbergi leiðtoga NATO í dag. Fundinum lauk fyrir skömmu og forsetinn ávarpaði blaðamenn á eftir.

Atlantshafsbandalagið hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem segir að leiðtogarnir hafi komið saman í Ankara til að staðfesta órofa skuldbindingu sína við sameiginlegar varnir bandalagsríkjanna.

Alþjóðasiglingamálastofnunin varaði í morgun við stigmögnun átaka við Hormússund. Síðustu þrjár vikur, eftir undirritun viljayfirlýsingar um vopnahlé, hefur skipaumferð aukist jafnt og þétt um sundið. Hún var þó ekki orðin jafn mikil og fyrir stríðið.

Alþjóðasiglingamálastofnunin tilkynnti í morgun að um 6.000 manns væru í áhöfnum fjölda skipa við Hormússund. Yfirmaður stofnunarinnar hefur lýst því hversu hættulegt og taugatrekkjandi það er fyrir áhafnirnar að vera fastar þarna á meðan stríð virðist mögulega vera að brjótast út á ný.

Trump notaði ýmis niðrandi orð um stjórnvöld í Íran þegar hann var spurður að því í morgun hvort samkomulag við Íran um vopnahlé stæði enn. Hann kvaðst líta sem svo á að úti væri um vopnahléð. „Ég vil ekki eiga lengur við þá. Þeir eru úrhrök. Veistu hvað úrhrak er? Þeir eru úrhrök. Þeir eru veikir. Þeir eru veikir og illgjarnir, og ofbeldisfullir,“ sagði Trump á leiðtogafundi NATO í Ankara í morgun.

Þá sagði Trump að það væri undir Írönum komið hvort viðræður yrðu hafnar á ný. Þá sakaði Trump þá um að hafa mistúlkað það sem samið hafi verið um. Trump sagði að samið hafi verið um að Íranar ættu engin kjarnorkuvopn en þeir hafi svo haldið því fram að slíkt hafi aldrei verið rætt.

Þá hefur Trump á leiðtogafundinum ítrekað gremju sína í garð aðildarríkjanna fyrir að hafa ekki veitt Bandaríkjunum liðsinni í stríðinu við Íran.

Spánverjar virðast vera alveg rólegir þrátt fyrir yfirlýsingar Bandaríkjaforseta í morgun um að hann hafi skipað fjármálaráðherra Bandaríkjanna að slíta á öll viðskiptatengsl milli ríkjanna.

Í yfirlýsingu frá skrifstofu forsætisráðherra Spánar, Pedro Sánchez, segir að ríkin eigi í mjög góðum menningarlegum og efnahagslegum tengslum við Bandaríkin. Spánverjar hafi ekki í hyggju að breyta neinu þar um.

Trump hefur sakað Spánverja um að slæmur bandamaður innan NATO. Stjórnvöld á Spáni hafa ekki leyft Bandaríkjaher að hafa viðkomu á landinu með herþotur á leið að gera árásir á Íran.

Árásir Bandaríkjanna og Írans sem hafa staðið síðan í gær flækja enn frekar tilraunir til að semja um frið, sagði Kaja Kallas, utanríkismálastjóri Evrópusambandsins, í færslu á X í morgun.

„Árásir Írans á Bahrein og Kúveit eru óásættanlegar,“ sagði hún. Utanríkisráðherrar ESB ætla að ræða við utanríkisráðherra Persaflóaríkjanna á mánudag um leiðir til að tryggja örugga skipaumferð um Hormússund.

Sundið hefur verið meira og minna lokað síðustu mánuði eftir að Bandaríkin og Ísrael hófu árásir á Íran og réðu æðstaklerk landsins af dögum. Íranar svöruðu með árásum á nágrannaríki þar sem Bandaríkin eru með herstöðvar. Á friðartímum eru um 20 prósent af allri olíu heimsins flutt um sundið.

Forseti Sýrlands, Ahmed al-Sharaa, kom til Ankara í morgun. Síðar í dag á hann fund með Bandaríkjaforseta, sem er í borginni ásamt öðrum leiðtogum aðildarríkja NATO og leiðtogum nokkurra Persaflóaríkja. Sýrlandsforseti kemur til Tyrklands í boði forseta landsins, Recep Tayyip Erdogan.

„Vegna Erdogans eigum við í mjög góðum samskiptum við nýjan leiðtoga Sýrlands,“ sagði Trump við fréttamenn í gær. „Hann hefur staðið sig frábærlega og haldið landinu saman. Samband okkar við hann er mjög gott.“

Sharaa kom í heimsókn til Washington á síðasta ári að ræða fjárhagsstuðning við land sitt.

Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í morgun að vopnahléi við Íran væri lokið. Hann sagði samninganefndir ríkjanna geta rætt saman en að þær sói tíma sínum með viðræðunum.

„Hvað mig varðar er þessu lokið. Það er tímasóun að eiga við þá, þeir eru lygarar,“ sagði Trump á blaðamannafundi í aðdraganda fundar Atlantshafsbandalagsríkja í Ankara í Tyrklandi.

Bandaríkin gerðu loftárásir á Íran í gærkvöld, að sögn í hefndarskyni fyrir árás á flutningaskip við Hormússund. Íranar svöruðu fyrir sig með árásum á Kúveit og Barein.

Bandaríkjaforseti hefur sagt á leiðtogafundinum í Ankara að afstaða NATO til Grænlands sé „mikið vandamál“. Aðildarríkin hafa alfarið mótmælt yfirlýsingum Trumps um að Bandaríkin ættu að taka yfir Grænland.

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra Íslands segir útspil Trumps ekki hafa komið á óvart. „Ég hef verið alveg skýr með að Grænland er auðvitað hluti af Danmörku og Grænland tilheyrir grænlenska fólkinu, og við verðum að virða það fullveldi sem þar er. Þetta er að sumu leyti kannski ekki óvænt útspil; þessi tónn hefur komið frá Bandaríkjaforseta áður. En línurnar eru alveg skýrar þegar kemur að bandamönnum, hann veit það vel, og ég bind miklar vonir við þá vinnu sem núna er í gangi milli Danmerkur og Bandaríkjanna,“ sagði Kristrún við RÚV áður en hún gekk inn á leiðtogafundinn.

Bandaríkjaforseti hótaði því í morgun að Bandaríkin hætti öllum viðskiptum við Spán. Ástæðan er gremja hans yfir því að Spánverjar verji ekki meiru til öryggis- og varnarmála og að þeir hafi ekki veitt Bandaríkjaher meira liðsinni í árásum þeirra á Íran.

Þegar Trump mætti á leiðtogafund NATO í Ankara í Tyrklandi í morgun lýsti hann þessu yfir.

Heimsmarkaðsverð á hráolíu hækkaði í morgun um yfir fimm prósent eftir yfirlýsingar Donalds Trumps, Bandaríkjaforseta, um að vopnahlé við Íran væri runnið út í sandinn. Bandaríkin hafa gert harðar árásir á Íran eftir að Íranar gerðu árásir á skip á Hormússundi.

Ég heiti Dagný Hulda Erlendsdóttir og segi frá helstu vendingum í alþjóðamálum í þessari fréttavakt í dag.

#framleiða #leyfa #patriot #ætla #úkraínu


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/erlent/2026-07-08-aetla-ad-leyfa-ukrainu-ad-framleida-patriot-flaugar-480811

📰 Aðrar fréttir

Leikarinn frægi óþekkjanlegur í nýju hlutverki
📅 12.07.2026 👁️ 0
Leikarinn frægi óþekkjanlegur í nýju hlutverki
Mörgum brá í brún að sjá myndir af leikaranum Brian Cox í hjólastól. Óttuðust margir að hann væri að glíma við alvarlegan heilsubrest eða þá að ellike...
Björn Jón skrifar: Hvað þætti Ara fróða um ESB?
📅 12.07.2026 👁️ 0
Björn Jón skrifar: Hvað þætti Ara fróða um ESB?
Mynd Einn áhugaverðasti angi Evrópusambandsumræðunnar eru raddir framliðinna.
„Þetta er al­gjör­lega ó­af­sakan­legt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ - Vísir
📅 12.07.2026 👁️ 0
„Þetta er al­gjör­lega ó­af­sakan­legt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ - Vísir
„Eins og staðan er í kerfinu núna þegar að hátt í fimmtíu prósent drengja eru að útskrifast eftir tíu ára grunnskólagöngu með svo slæman lesskilning a...
Valkostir Íslands í breyttum heimi
📅 12.07.2026 👁️ 0
Valkostir Íslands í breyttum heimi
Valkostir Íslands í breyttum heimi Í breytt­um heimi hafa lít­il ríki eins og Ís­land ástæðu til að hafa áhyggj­ur og meta hvernig best verði tryggt ö...
Hvalur skaut up kollinum í Hólma­vík - Vísir
📅 12.07.2026 👁️ 0
Hvalur skaut up kollinum í Hólma­vík - Vísir
Í myndbandinu í spilaranum hér að neðan má sjá hnúfubakinn á sundi í nálægð við Hólmavík, líklega í leit að fæðu.  Hvalurinn stingur upp kollinum og b...
Mælirinn segir 33 gráður - Vísir
📅 12.07.2026 👁️ 0
Mælirinn segir 33 gráður - Vísir
Ferðavagnar hafa verið á fleygiferð um götur Egilsstaða í dag þar sem ferðalangar eru ýmist að koma sér aftur heim eftir heita helgi fyrir austan eða ...
Vísundur kastaði ferðamanni hátt upp í loftið í Yellowstone – sjáðu myndbandið
📅 12.07.2026 👁️ 0
Vísundur kastaði ferðamanni hátt upp í loftið í Yellowstone – sjáðu myndbandið
Ferðamaður slasaðist alvarlega þegar vísundur réðst á hann á Bridge Bay-tjaldsvæðinu í Yellowstone-þjóðgarðinum í Bandaríkjunum. Árásin náðist á myndb...
Maður fannst látinn á Ráðhústorginu í Kaupmannahöfn
📅 12.07.2026 👁️ 0
Maður fannst látinn á Ráðhústorginu í Kaupmannahöfn
Karlmaður á fimmtugsaldri fannst látinn á Ráðhústorginu í Kaupmannahöfn snemma í morgunsárið. Vegfarandi gekk fram á manninn og gerði lögreglu viðvart...
Steiney frum­sýnir kærastann - Vísir
📅 12.07.2026 👁️ 1
Steiney frum­sýnir kærastann - Vísir
„Helgi er 40 ára í dag. Hann gerir heiminn svo miklu skemmtilegri. Alltaf til í grín og ævintýri en líka að hlusta og staldra við,“ skrifar Steiney á ...
ESB afturkallar 300 milljóna króna styrk Feneyjatvíæringsins vegna þátttöku Rússa
📅 12.07.2026 👁️ 1
ESB afturkallar 300 milljóna króna styrk Feneyjatvíæringsins vegna þátttöku Rússa
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur tekið endanlega ákvörðun um afturköllun styrks sem var veittur til Feneyjatvíæringsins í myndlist fyrir tímab...
„Af og frá“ að Ís­land fram­selji lög­gjafar­valdið með inn­göngu - Vísir
📅 12.07.2026 👁️ 1
„Af og frá“ að Ís­land fram­selji lög­gjafar­valdið með inn­göngu - Vísir
„Mín skoðun er sú að þetta val, það er að segja þessi krafa um að deila valdi með Evrópusambandinu, er miklu takmarkaðra heldur en einhvern veginn umr...
Svona lærði ég að lifa í þessu undri sem lífið er
📅 12.07.2026 👁️ 0
Svona lærði ég að lifa í þessu undri sem lífið er
Svona lærði ég að lifa í þessu undri sem lífið er Mynd­list­ars­kon­an og bún­inga- og leik­mynda­hönn­uð­ur­inn Þór­unn Elísa­bet Sveins­dótt­ir fékk...
Aþena dregur lið sitt úr deildinni - Brynjar Karl skýtur fast á nýja meirihlutann í borginni
📅 12.07.2026 👁️ 0
Aþena dregur lið sitt úr deildinni - Brynjar Karl skýtur fast á nýja meirihlutann í borginni
Brynjar Karl Sigurðsson, þjálfari kvennaliðs Aþenu í körfubolta, tilkynnir að liðið verði dregið úr Bónusdeildinni. Skýtur hann föstum skotum á nýjan ...
Second suspect arrested for jewellery store robbery in Gran Canaria
📅 12.07.2026 👁️ 1
Second suspect arrested for jewellery store robbery in Gran Canaria
A second man has been arrested in connection with the armed robbery of a jewellery shop at Centro Comercial El Mirador, the National Police Corps has ...
The Tenerife beaches worth visiting before everyone else finds them
📅 12.07.2026 👁️ 1
The Tenerife beaches worth visiting before everyone else finds them
Tenerife has earned its reputation as one of Europe's most popular island destinations, welcoming millions of visitors every year with its year-round ...
Lögregla handtók sextán ökumenn: „Duglegt fólk á vaktinni“
📅 12.07.2026 👁️ 0
Lögregla handtók sextán ökumenn: „Duglegt fólk á vaktinni“
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók ellefu ökumenn í gærkvöld og nótt vegna gruns um akstur undir áhrifum ávana- eða fíkniefna og fimm ökumenn fyri...
Aþena dregur lið sitt úr Bónusdeildinni – Brynjar kennir Reykjavíkurborg um
📅 12.07.2026 👁️ 0
Aþena dregur lið sitt úr Bónusdeildinni – Brynjar kennir Reykjavíkurborg um
Körfuknattleiksfélagið Aþena hefur ákveðið að draga meistaraflokk sinn úr Bónusdeild kvenna, þrátt fyrir að liðið hafi aðeins tapað einum leik í 1. de...
Hillsborough Law set to be approved by MPs before summer break
📅 12.07.2026 👁️ 0
Hillsborough Law set to be approved by MPs before summer break
The crush at the 1989 FA Cup semi-final between Liverpool and Nottingham Forest left 97 fans dead.
Man dies after being pulled unconscious from hotel pool in Fuerteventura
📅 12.07.2026 👁️ 0
Man dies after being pulled unconscious from hotel pool in Fuerteventura
A man has sadly died from drowning after being rescued from the swimming pool of a hotel in Esquinzo, in the municipality of Pájara, on the island of ...
Kynferðisbrot og líkamsárás til rannsóknar eftir Landsmót hestamanna
📅 12.07.2026 👁️ 1
Kynferðisbrot og líkamsárás til rannsóknar eftir Landsmót hestamanna
Lögreglan á Norðurlandi vestra rannsakar tvö mál eftir Landsmót hestamanna á Hólum um helgina, kynferðisbrot og líkamsárás sem var hvort tveggja tilky...
Ruslatunnugreifinn skákar öfgahægri manninum Farage í nýrri könnun
📅 12.07.2026 👁️ 1
Ruslatunnugreifinn skákar öfgahægri manninum Farage í nýrri könnun
Bretar eru almennt mun hrifnari af Ruslatunnugreifanum, Count Binface, en öfgahægri manninum Nigel Farage. Þetta sýnir ný skoðanakönnun.Í nýrri könnun...
Brendon McCullum sacked as England Test head coach but will retain white-ball role
📅 12.07.2026 👁️ 1
Brendon McCullum sacked as England Test head coach but will retain white-ball role
England are now without a Test head coach and captain as Brendon McCullum leaves after four years in the role.
Fjörutíu og þrjú börn skráð í skóla í Grindavík næsta haust
📅 12.07.2026 👁️ 1
Fjörutíu og þrjú börn skráð í skóla í Grindavík næsta haust
Ráðning kennara við leik- og grunnskóla í Grindavík er á lokametrunum segir formaður bæjarráðs. Fjörutíu og þrjú börn setjast á skólabekk í bæjarfélag...
„Hlökkum til að skólabjallan hringi inn í haust“
📅 12.07.2026 👁️ 0
„Hlökkum til að skólabjallan hringi inn í haust“
Ráðning kennara við leik- og grunnskóla í Grindavík er á lokametrunum segir formaður bæjarráðs. Fjörutíu og þrjú börn setjast á skólabekk í bæjarfélag...
Chat Control 1.0 – ESB mun fylgjast vel með þér!
📅 12.07.2026 👁️ 1
Chat Control 1.0 – ESB mun fylgjast vel með þér!
Chat Control 1.0 – ESB mun fylgjast vel með þér! Fréttin12. júlí 2026Erlent, Evrópusambandið, Júlíus Valsson, RitskoðunLeave a Comment Júlíus Valsson ...
Norwegian tapar veðmáli og breytir um forsíðumynd
📅 12.07.2026 👁️ 1
Norwegian tapar veðmáli og breytir um forsíðumynd
Norska flugfélagið Norwegian hefur staðið við veðmál sitt við breska flugfélagið British Airways og breytt um forsíðumynd á Instagram-reikningi sínum....
Land undir nýjan kirkjugarð loksins fundið á Selfossi
📅 12.07.2026 👁️ 2
Land undir nýjan kirkjugarð loksins fundið á Selfossi
Núverandi kirkjugarður á Selfossi við bakka Ölfusár og rétt hjá kirkjunni er langt kominn með að fyllast og því hafa bæjaryfirvöld í Árborg verið að l...
World Cup 2026: What to expect from semi-finals including Kylian Mbappe, Lamine Yamal, Jude Bellingham and Lionel Messi
📅 12.07.2026 👁️ 0
World Cup 2026: What to expect from semi-finals including Kylian Mbappe, Lamine Yamal, Jude Bellingham and Lionel Messi
France face Spain and England take on Argentina in heavyweight World Cup semi-final meetings - here's what to expect from the last four.
World Cup 2026: England boss Thomas Tuchel 'not happy with the performance' - but why are they winning?
📅 12.07.2026 👁️ 0
World Cup 2026: England boss Thomas Tuchel 'not happy with the performance' - but why are they winning?
Football tactics correspondent Umir Irfan examines why England are still winning games despite Thomas Tuchel insisting performances are not good.
Ferðaþjónusta á hjara veraldar:  Grænlendingar læra af mistökum Íslendinga
📅 12.07.2026 👁️ 1
Ferðaþjónusta á hjara veraldar: Grænlendingar læra af mistökum Íslendinga
Ferðaþjónusta á hjara veraldar: Grænlendingar læra af mistökum Íslendinga Græn­land vill að ferða­þjón­usta standi und­ir fjöru­tíu pró­sent­um af út­...
Fjórir drepnir í árásum á Úkraínu
📅 12.07.2026 👁️ 1
Fjórir drepnir í árásum á Úkraínu
Að minnsta kosti fjórir voru drepnir í dróna- og eldflaugaárásum Rússa á Úkraínu í nótt, þrír í Dnipropetrovsk-héraði og einn í Kherson. Rússar hafa g...
At­vinnu­lausum í byggingar­iðnaði fjölgar gríðar­lega - Vísir
📅 12.07.2026 👁️ 2
At­vinnu­lausum í byggingar­iðnaði fjölgar gríðar­lega - Vísir
Fjallað verður um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar á slaginu 12. Þrjú kynferðisbrot á hátíðarsvæði Kótilettunnar eru til rannsóknar hjá lögreglu en t...
'Argentina get ready': Fans in London on England win
📅 12.07.2026 👁️ 1
'Argentina get ready': Fans in London on England win
England fans in London celebrated their team's World Cup win against Norway.
Tveir látnir eftir að tveir hófu skot­hríð - Vísir
📅 12.07.2026 👁️ 1
Tveir látnir eftir að tveir hófu skot­hríð - Vísir
Atvikið átti sér stað á salsa-hátíð sem haldin var í Toronto í Kanada. Frank Barredo, aðstoðarlögreglustjóri hjá lögreglunni í Toronto, sagði við frét...
Declan Rice in bed for nearly three days before Norway match - Thomas Tuchel
📅 12.07.2026 👁️ 1
Declan Rice in bed for nearly three days before Norway match - Thomas Tuchel
England boss Thomas Tuchel says Declan Rice was in bed for most of the three days prior to the World Cup quarter-final win against Norway because of a...
Sigurður Brynjar Pálsson: Covid sýndi okkur að við getum leyst hvað sem er
📅 12.07.2026 👁️ 1
Sigurður Brynjar Pálsson: Covid sýndi okkur að við getum leyst hvað sem er
Það þarf að taka til og skera fitu, hjá ríkinu eins og sveitarfélögum. Við erum að eyða umfram tekjur og það gengur ekki til lengdar. Þá er jákvætt hj...
Þrjú kynferðisbrot á Kótelettunni í nótt
📅 12.07.2026 👁️ 1
Þrjú kynferðisbrot á Kótelettunni í nótt
Lögreglan á Suðurlandi rannsakar þrjú kynferðisbrot sem áttu sér stað í nótt. Bryndís Jóhannesdóttir, aðalvarðstjóri Lögreglunnar á Suðurlandi, segir ...
Nothing to suggest Ann Widdecombe killing was politically motivated, police say
📅 12.07.2026 👁️ 1
Nothing to suggest Ann Widdecombe killing was politically motivated, police say
Devon and Cornwall Police are not looking for anyone else in connection with her death.
Police say no suggestion of political motive in Widdecombe killing after new arrest
📅 12.07.2026 👁️ 0
Police say no suggestion of political motive in Widdecombe killing after new arrest
Police say they are not looking for anyone else after a 28-year-old man was arrested in Rotherham, South Yorkshire.
Þrjú kynferðisbrot á tón­leika­svæðinu til rann­sóknar - Vísir
📅 12.07.2026 👁️ 1
Þrjú kynferðisbrot á tón­leika­svæðinu til rann­sóknar - Vísir
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglunni á Suðurlandi. Þar segir að málin séu í rannsókn.  Tilkynning Lögreglunni á Suðurlandi: Mikið annríki he...
Brotist inn og peninga­skápur tekinn - Vísir
📅 12.07.2026 👁️ 1
Brotist inn og peninga­skápur tekinn - Vísir
Í dagbók lögreglu síðdegis í gær kom fram að tilkynnt var um innbrot í hverfi 105. Þjófurinn hefði tekið peningaskáp og reiðufé. Jón Þór Karlsson, lög...
World Cup 2026: England and Argentina's football rivalry
📅 12.07.2026 👁️ 1
World Cup 2026: England and Argentina's football rivalry
As England and Argentina prepare to go head-to-head in Wednesday's World Cup semi-final, BBC Sport looks at their footballing rivalry.
Badly burned British couple rescued from ravine during Spain wildfires
📅 12.07.2026 👁️ 2
Badly burned British couple rescued from ravine during Spain wildfires
The unnamed pair were found semi-conscious with 40% burns after being trapped by the blazes raging through Almeria province.
Hryllingur í háloftunum: Gluggi brotnaði og einn farþeginn sogaðist að hluta út
📅 12.07.2026 👁️ 2
Hryllingur í háloftunum: Gluggi brotnaði og einn farþeginn sogaðist að hluta út
Flugvél Ryanair þurfti að gera neyðarlendingu í Grikklandi eftir að einn glugginn í farþegarýminu brotnaði. Einn farþegi sogaðist að hluta til út um g...
Maður í haldi grunaður um að hafa myrt fyrr­verandi ráð­herra - Vísir
📅 12.07.2026 👁️ 1
Maður í haldi grunaður um að hafa myrt fyrr­verandi ráð­herra - Vísir
Widdecombe, sem var 78 ára, fannst látin á heimili sínu á fimmtudag en er talin hafa orðið fyrir árás um sólarhring áður. Hún var þingmaður Íhaldsflok...
Þrír gistu í fanga­geymslu og tölu­vert um fölsuð skil­ríki - Vísir
📅 12.07.2026 👁️ 1
Þrír gistu í fanga­geymslu og tölu­vert um fölsuð skil­ríki - Vísir
„Það voru náttúrulega bara eins og alltaf einhverjir  pústrar og kýtingur inni á svæðinu sjálfu,“ segir Bryndís Jóhannesdóttir, aðalvarðstjóri hjá Lög...
Hita­bylgjur, full­veldi og Megas - Vísir
📅 12.07.2026 👁️ 1
Hita­bylgjur, full­veldi og Megas - Vísir
Halldór Björnsson, fagstjóri veðurs og loftslags hjá Veðurstofu Íslands, er fyrsti gesturinn. Hann ræðir hitabylgjur, sem eru margfalt tíðari í Evrópu...
Íran og Banda­ríkin skiptast á á­rásum - Vísir
📅 12.07.2026 👁️ 2
Íran og Banda­ríkin skiptast á á­rásum - Vísir
Íranir hafi lokað fyrir umferð skipa um Hormússund þangað til „bandarískum afskiptum á svæðinu lýkur,“ að sögn IRGC. Ákvörðunin hafi verið tekin vegna...
„Ertu að segja mér að ég endi í hjóla­stól?“ - Vísir
📅 12.07.2026 👁️ 2
„Ertu að segja mér að ég endi í hjóla­stól?“ - Vísir
Birgir greindist með MS-sjúkdóminn fyrir tveimur árum. MS er sjúkdómur sem flestir hafa einhvern tímann heyrt nefndan en færri þekkja í raun. Hann er ...
Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Ólíkt hafast þeir að
📅 12.07.2026 👁️ 1
Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Ólíkt hafast þeir að
Kolbrun Bergthorsdottir