Aðkomumaður á Akureyri sagður hafa hagnast verulega á fíkniefnum

Erlendur Akureyringur hefur verið ákærður fyrir fíkniefnalagabrot og peningaþvætti en mál hans verður þingfest í Héraðsdómi Norðurlands eystra í nóvember.
Samkvæmt ákæru er maðurinn sakaður um að hafa að kvöldi 8. október 2025 haft í vörslum sínum samtals 73,18 grömm af kókaíni og 203,35 grömm af maríhúana. Fíkniefnin hafi verið ætluð til sölu og fundust bæði á dvalarstað hans á Akureyri og á honum sjálfum þegar lögregla handtók hann skammt frá heimilinu.
Maðurinn er einnig ákærður fyrir peningaþvætti. Honum er gefið að sök að hafa aflað sér 800.500 króna ávinnings með sölu fíkniefna eða annarri refsiverðri háttsemi áður en hann var handtekinn í júlí 2024.
Ákæruvaldið krefst refsingar, greiðslu sakarkostnaðar og upptöku fíkniefnanna. Þá er krafist upptöku á 800.500 krónum og farsíma sem lögregla lagði hald á við handtöku mannsins.