Húðflúrarar halda upp á það um helgina að 20 ár eru síðan fyrsta húðflúrhátíðin var haldin. Á þriðja tug flúrara sýna listir sínar um helgina í Gamla bíói.
Margir þeirra húðflúrara sem hátíðina sækja hafa lagt leið sína þangað á vegum Reykjavík Ink í mörg ár, einhverjir oftar en tíu sinnum. Forsprakkar hátíðarinnar segja sprengingu hafa orðið í bransanum á síðustu tuttugu árum.
Ásrún Ásta Ásmundardóttir er einn gesta hátíðarinnar. Hún fékk sér húðflúr í dag frá húðflúraranum Mike sem flaug til Reykjavíkur frá Flórída til að sækja hátíðina.
Spurð hvort það sé ekki sársaukafullt að fá sér húðflúr segir Ásrún erfitt að neita því.
„Já, ég ætla nú ekkert að ljúga því. En maður venst þessu eftir smá, svo dofnar þetta. En svo er þetta líka bara hluti af upplifuninni.“