Sjö af hverjum tíu félagsmönnum í Visku eru hlynnt því að Ísland haldi áfram aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Þetta er niðurstaða könnunar sem félagið gerði meðal félagsmanna. 70 prósent segjast hlynnt, 22 prósent andvíg og 7 prósent hafa ekki gert upp hug sinn.
Félagar voru spurðir spurningarinnar: Hversu hlynnt(ur) eða andvíg(ur) ertu því að Ísland haldi áfram aðildarviðræðum við Evrópusambandið? Könnunin var gerð í júlí en unnið úr henni í ágúst, að loknum sumarfríum.
54 prósent segjast mjög hlynnt því að ljúka viðræðum en 14 prósent eru því mjög andvíg. Ef aðeins eru teknir þeir sem sögðust ætla að greiða atkvæði í þjóðaratkvæðagreiðslunni sögðust 78 prósent hlynnt því að halda viðræðum áfram en 16 prósent andvíg.
Skoðanir meðal félagsmanna Visku eru skiptari þegar kemur að inngöngu í Evrópusambandið. Fólk var spurt spurningarinnar: Hversu hlynnt(ur) eða andvíg(ur) ertu því að Ísland haldi áfram aðildarviðræðum við Evrópusambandið? Þá sögðust 45 prósent hlynnt inngöngu, 34 prósent sögðust óviss og 21 prósent sagðist andvígt.
Viska varð til 2023 þegar Félag íslenskra félagsvísindamanna, Fræðagarður og Stéttarfélag bókasafns- og upplýsingafræðinga sameinuðust.