Evrópuhreyfingin segist vonsvikin með niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslunnar, en að hún muni að sjálfsögðu virða lýðræðislega niðurstöðu.
Í yfirlýsingu frá hreyfingunni segir að 105.339 Íslendingar hafi kosið með því að hefja á ný aðildarviðræður við ESB og að það þurfi að sýna þeim og sjónarmiðum þeirra virðingu.
Yfirlýsingin í heild:
Niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar liggur fyrir.
47,2% kjósenda studdu áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið en 52,8% voru andvíg. Evrópuhreyfingin virðir að sjálfsögðu lýðræðislega niðurstöðu þjóðarinnar, þótt við séum að sjálfsögðu vonsvikin.
Við teljum enn mikilvægt að Ísland taki virkan þátt í evrópsku samstarfi. Þótt Ísland verði áfram utan ESB erum við nátengd Evrópu í gegnum EES, Schengen, NATO og fjölmörg önnur nauðsynleg samvinnuverkefni sem Ísland getur ekki verið án. Áhrif Evrópu á Ísland hverfa ekki.
Nærri helmingur þjóðarinnar kaus að halda áfram á evrópskri vegferð sem hefði þýtt stöðugra efnahagsumhverfi, meiri áhrif og sterkari stöðu Íslands meðal annarra lýðræðisríkja. Það skiptir miklu máli að sýna þeim 105.339 Íslendingum skilning og sjónarmiðum þeirra virðingu.
Við erum afar þakklát öllum sem lögðu hönd á plóg í baráttunni undanfarna mánuði. Grasrótarstarfið sýndi að Evrópuhugsjónin á Íslandi er sterk og lifandi.
Nú hefst nýr kafli. Evrópuhreyfingin mun áfram vinna að auknum tengslum Íslands við Evrópu, verja evrópska samvinnu og lýðræðisleg gildi og taka þátt í málefnalegri umræðu um framtíð Íslands og Evrópu
Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, deildi mynd af íslenska fánanum við hún fyrir utan Salinn í Kópavogi, skömmu áður en lokatölur lágu fyrir.
Þá var þó orðið nokkuð ljóst hver niðurstaðan yrði, því það hefði þurft mikinn viðsnúning í Suðvesturkjördæmi til að já yrði ofan á á landsvísu.
„Þjóðin hefur talað,“ skrifaði Guðrún. Svo mörg voru þau orð.
Eins og fram hefur komið var lokaniðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar sú að 52,8% sögðu nei og 47,7% sögðu já við því að hefja á ný aðilidarviðræður við Evrópusambandið.
Það var mikill munur á niðurstöðum eftir kjördæmum. Í báðum Reykjavíkurkjördæmunum voru fleiri sem sögðu já, eða 57,5% í Reykjavík norður og 54,5% í Reykjavík suður.
Í öllum hinum kjördæmunum sögðu fleiri nei. Í Norðvesturkjördæmi sögðu 62,9% nei, 61,2% í Norðausturkjördæmi, 60% í Suðurkjördæmi og 53% sögðu nei í Suðvesturkjördæmi.
Velkomin á fréttavaktina.
Lokatölur bárust úr Suðvesturkjördæmi nú á tíunda tímanum og þá liggur niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar um að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið fyrir. Naumur meirihluti hafnaði því að hefja viðræðurnar á ný, eða 52,8%.
Við ætlum að fylgjast með öllum helstu vendingum í dag, ræða við stjórnmálamenn og -fræðinga og fylgjast með viðbrögðum hér heima og erlendis.
Við vorum með fréttavakt í nótt þar sem við fylgdumst með helstu vendingum. Hana er hægt að nálgast hér: