Björgunarfélag Vestmannaeyja var kallað út skömmu fyrir klukkan átta í morgun. Þá barst beiðni um aðstoð vegna þaks sem var að losna af einbýlishúsi í ofanverðum bænum.
Veðurstofan hefur gefið út gular viðvaranir vegna skriðuhættu á Austfjörðum.
Talsverð úrkoma var í byrjun vikunnar og er jarðvegur í hlíðum því blautur eða vatnsmettaður. Hann er því viðkvæmur fyrir frekari hættu og útlit er fyrir talsverða eða mikla rigningu.
Í dag skapast kjöraðstæður fyrir fljúgandi trampólín og ruslafötur sem færast úr stað.
Veðurstofan hvetur fólk til að koma lausamunum í skjól svo þeir fjúki ekki.
Fyrirsjáanlegt er að óveðrið hamli samgöngum í dag. Þegar er búið að loka þjóðveginum syðst á landinu en auk þess er fjöldi vega á óvissustigi. Viðbúið er að þeir geti lokast með skömmum fyrirvara.
Hálkublettir eru á Öxnadalsheiði, í Mývatnsöræfum, Möðrudalsöræfum, á Biskupshálsi og Vopnafjarðarheiði.
Á Vesturlandi eru Vatnaleið, Svínadalur, Brattabrekka og Holtavörðuheiði á óvissustigi frá klukkan 10.
Flestir vegir á Vestfjörðum verða á óvissustigi í dag. Fyrst eru það Þröskuldar, Steingrímsfjarðarheiði og Ísafjarðardjúp frá klukkan 10. Síðan Klettsháls klukkan 11 og Kleifaheiði, Hálfdán, Miklidalur, Dynjandisheiði og Gemlufjallsheiði frá klukkan 12.
Öxnadalsheiði er á óvissustigi frá klukkan 7 og Siglufjarðarvegur frá klukkan 9.
Farið er að hvessa hressilega syðst á landinu þar sem skil frá mjög djúpri lægð suður af landinu eru farin að ganga inn á landið. Þar er austan stormur eða rok með talsverðri eða mikilli úrkomu.
Í veðurpistli vakthafandi veðurfræðings á Veðurstofu Íslands segir að klukkan sex hafi verið hvassast á Stórhöfða. Þar var vindurinn 37,2 metrar á sekúndu. Næsthvassast var á Vatnsgarðshólum þar sem vindurinn fór í 25,2 metra á sekúndu.
Lægðin gæti endurskrifað Íslandssöguna.
„Lægðin er óvenju djúp og eru nýjustu spár að reikna hana alveg niður í 930 mb þegar hún verður dýpst um hádegisleytið, en þá verður hún skammt suður af Vestmannaeyjum. Lægsti þrýstingur sem mælst hefur í október er 938,4 mb árið 1963.“
„Eins og við höfum verið að spá í gær og í fyrradag þá er útlit fyrir vonskuveður á öllu landinu í dag. Það er mjög djúp lægð núna á hraðri leið til okkar úr suðri og búið að hvessa talsvert sunnanlands í nótt og það á eftir að versna mjög hratt í morgunsárið með talsverðri rigningu,“ segir Hrafn Guðmundsson veðurfræðingur.
„Skilin verða komin inn á landið fyrir hádegi og úrkoma í öllum landshlutum og hvassviðri og stormur, jafnvel rok.“
Lægðamiðjan kemur inn á land síðdegis og þá dregur talsvert úr veðri sunnan og austan til á landinu, segir Hrafn. Þá minnkar veðurhæðin og dregur úr úrkomu.
„Síðan kemur mjög stíf norðanátt sem er vestan megin við lægðarmiðju. Hún kemur inn seinnipartinn með norðan stórhríð á Vestfjörðum og Norðurlandi vestra. Það er margt að gerast í dag.“
Víða viðrar illa til ferðalaga. Fyrst um sinn er hvassast syðst á landinu, svo sem undir Eyjafjöllum, í Mýrdal og Öræfum þar sem verða hættulegar hviður.
Þetta breytist þegar líður á daginn. Þá taka gildi appelsínugular viðvaranir á norðvestanverðu landinu og veður versnar á Norður- og Austurlandi. Það getur gert hríð á fjallvegum vestanlands og fyrir norðan. „Það er varasamt ferðaveður víða á landinu.“
Veðrið verður sérstaklega slæmt norðvestan til þegar hvessir og snjóar talsvert. „Þar getur færðin versnað mjög mikið og hratt.“
Hrafn ráðleggur fólki að huga að lausum munum og taka þá inn.
Á höfuðborgarsvæðinu er útlit fyrir hvassar hviður fram að hádegi en lagast upp úr því.
Búið er að loka hringveginum á stórum kafla syðst á landinu vegna óveðursins sem gengur yfir landið. Vegurinn verður lokaður til klukkan níu.
Mannaðir lokunarpóstar verða á svæðinu.
Sjómenn drifu sig í land í nótt áður en óveðrið skall á suður af landinu. Laust fyrir klukkan þrjú voru öll skip farin af viðvörunarsvæðinu út af Suðurlandi.
Valtýr Bjarnason, stýrimaður á Vestmannaey, ræddi við fréttastofu rétt fyrir klukkan fjögur. Skipið átti að koma inn til löndunar á morgun en þau áform breyttust vegna veðursins.
„Versta veðrið hérna í Eyjum verður þarna klukkan fimm til níu þannig að við ætluðum að vera komnir inn áður en það skylli á,“ segir Valtýr. „Það voru komnir svona fjórtán fimmtán metrar þegar ég var að sigla inn, þannig að það er aðeins byrjað.“
Góðan dag og velkomin á fréttavakt RÚV þar sem við fylgjumst með óveðrinu sem gengur yfir landið í dag og þeim áhrifum sem það kann að hafa á samfélagið.
Gular og appelsínugular viðvaranir hafa verið gefnar út um allt land. Þær fyrstu hafa þegar tekið gildi. Sú alvarlegasta er appelsínugul viðvörun á Suðurlandi vegna austan- og norðaustanstorms. Honum fylgir talsverð rigning á láglendi og ekkert ferðaveður er meðan veðrið er hvað verst. Einnig hafa tekið gildi gular viðvaranir vegna storms og hvassviðris á höfuðborgarsvæðinu, Suðausturlandi og Austfjörðum.
Þegar líður á daginn tekur við hver viðvörunin á fætur annarri. Verst verður veðrið svo við Breiðafjörð, á Vestfjörðum og Ströndum og Norðurlandi vestra þegar líður á daginn, kvöldið og nóttina.
Misjafnt er eftir landshlutum hvenær óveðrið hefst og hvenær það gengur niður. Sums staðar verður það versta afstaðið í dag en annars staðar ekki fyrr en í nótt eða á morgun. Síðasta gula viðvörunin fellur úr gildi á hádegi á morgun, á Austurlandi.