Dómar voru í dag kveðnir upp í sakamáli gegn 57 einstaklingum vegna hruns brúar í Genóa 2018. 43 fórust í slysinu sem er eitt versta samgönguslys í sögu Ítalíu. 32 sakborningar hlutu dóma í dag. Yfirmaður fyrirtækisins sem átti og rak brúna fékk 12 ára fangelsisdóm.
Einn af stöplum Morandi-brúarinnar gaf sig í mikilli rigningu 14. ágúst 2018. Þá var 51 ár liðið frá því brúin var tekin í notkun. Í dóminum í dag segir að allan þann tíma hafi ekki einu sinni lágmarksviðhaldi verið sinnt á þeim stöpli sem gaf sig. Saksóknari lýsti stöplinum sem tifandi tímasprengju.
Giovanni Castellucci, æðsti yfirmaður Autostrade per l'Italia, hlaut tólf ára dóm fyrir vanrækslu og að valda dauða fjölda fólks með gáleysi. Autostrade per l'Italia er fyrirtækið sem átti og rak brúna. Það var upphaflega sett á fót sem ríkisfyrirtæki eftir seinni heimsstyrjöld en einkavætt undir lok síðustu aldar.
Flestir sakborningar voru stjórnendur og sérfræðingar hjá tveimur fyrirtækjum, því sem rak brúna og öðru sem átti að sjá um viðhald. Yfirmaður viðhalds hjá Autostrade per l'Italia fékk ellefu ára dóm og næstæðsti stjórnandi fyrirtækisins fimm og hálfs árs dóm.
Yfirheyrslur og réttarhöld fyrir dómi tóku fjögur ár.
Edoardo Rixi, samgönguráðherra Ítalíu, fagnaði dóminum. Hann sagði að hrun brúarinnar hefði ekki verið slys heldur afleiðing af mistökum og vanrækslu þeirra sem áttu að tryggja öryggi brúarinnar.